breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forsætisráðherra erum við hvergi nærri hætt að fylgjast með og bregðast við því sem er að gerast á þessu svæði. Við erum líklega ekki farin að sjá fyrir endann á þessu vegna þess að við vitum ekki hvernig þessar jarðhræringar eiga eftir að þróast. Við höfum hins vegar verið að ræða það að horfa þurfi á þetta svæði til framtíðar. Eitt af því sem er mjög jákvætt fyrir svæðið er að alþjóðaflugið hefur ekki beðið neina hnekki og það hefur verið í gangi allan tímann. Af hverju segi ég það? Jú, vegna þess að við þurfum að horfa til þess, þegar við erum að horfa til lítilla og meðalstórra fyrirtækja, að íhuga hvort mögulegt verði, ef breytingar verða þarna, að taka þráðinn upp aftur.
Við ætlum ekkert að gefast upp á Grindavík, ekki frekar en þeir sem búa þar. Hvort við getum sagt nákvæmlega hvernig allt verður eftir þrjá mánuði — við bara getum það ekki. En við stöndum vaktina. Varðandi þessi áhrif, þessi efnahagslegu áhrif, hafa ríkisstjórnin, fjármála- og efnahagsráðherra og forsætisráðuneytið að sjálfsögðu farið mjög gaumgæfilega yfir þau útgjöld eða þá fjárfestingu til framtíðar, við skulum frekar orða það þannig, og hvaða áhrif þetta mun hafa á atvinnulífið á svæðinu og hreinlega horfur varðandi gjaldeyristekjur, varðandi hagvöxt og annað slíkt. Það er alveg ljóst að hægist verulega á hagkerfinu, sem gæti mögulega tengst ferðaþjónustu, hefur það auðvitað áhrif á tekjur ríkissjóðs og fleira. Það er því mjög mikilvægt að við séum meðvituð um þær aðgerðir sem við erum að fara í og sendum skýr skilaboð til umheimsins um að við ætlum að sinna þessu svæði og standa með íslenskri ferðaþjónustu sem er mögulega að horfa á ákveðnar blikur á lofti hvað varðar þróun sumarsins og næsta vetrar.