154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Er ekki tilefni þess fundar, sem fulltrúar lítilla og millistórra fyrirtækja í Grindavík óskuðu eftir með forsætisráðherra í liðinni viku, einmitt það að þessir aðilar telja að þær lausnir, sem koma að meginhluta úr verkfærakistu heimsfaraldurs, passi ekki við vandann sem þarna er uppi? Ég held að hann sé að mörgu leyti miklu flóknari og fjölþættari en sá sem við áttum við fyrir nokkrum árum? Er ekki einmitt vandamálið að þessir aðilar upplifa gagnvart sínum rekstri að lausnirnar passi ekki? Ég held að þetta sé ekki endilega spurning um viðbótarkrónur og -aura heldur að lausnirnar passi ekki. Það er áhyggjuefni ef rekstraraðilum fyrirtækja er sagt: Þið verðið að bíða haustþingsins eftir að hlutir verði skoðaðir til þess að lausnirnar passi betur en verið hefur.