154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:58]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað svo að telji rekstraraðilar sem eru með lítil og meðalstór fyrirtæki að lausnirnar passi ekki munu stjórnvöld vinna áfram með þessum aðilum á svæðinu. Númer eitt, tvö og þrjú er að við reynum að gera hluti eins sjálfbæra og hugsast getur þarna á svæðinu. Ég held að það sem er erfiðast sé ef við sjáum atvinnustig lækka í kjölfar þessara hamfara. Það er til mikils að vinna að sem flestir geti hafið aftur störf í svipuðum rekstri þar sem þekking, hæfni og kunnátta þeirra liggur.