breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður er líklega upplýstur um hefur verið skipuð framkvæmdanefnd um þessi verkefni sem við stöndum frammi fyrir. Hún er leidd af Árna Þór Sigurðssyni, fyrrverandi alþingismanni og sendiherra. Þessi framkvæmdanefnd hóf störf 1. júní til að ná enn betur utan um félagslegar þarfir og framtíð menntunar á svæðinu. Meginhlutverkið er að við gerum það sem þarf til að halda utan um fólkið sem bjó þarna og hefur áhuga á því að búa þarna í framtíðinni þegar aðstæður leyfa. Það er hins vegar ekki hægt að horfa fram hjá því að mjög margir hafa kosið að selja eignir sínar. Mögulega er það tímabundið því að einhverjir ætla að koma til baka. Megintilgangurinn með því að setja þessa framkvæmdanefnd á laggirnar og koma fram með framhaldsúrræði er að ná utan um fólkið á svæðinu og huga enn frekar að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Við munum standa vaktina með Grindavík.