breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég get verið henni innilega sammála um það að við þurfum að bretta upp ermar og taka á þessu máli. En við höfum því miður gleymt viðkvæmasta hópnum, fötluðu fólki, sem er viðkvæmast fyrir öllu því áreiti sem þetta gos hefur valdið. Ég veit til þess að fólk er að sligast undan því að hafa aldraða einstaklinga á heimilinu og reyna að stunda vinnu og láta heimilislífið ganga sinn gang. Fólk er hreinlega að gefast upp. Það brennur út. Það er auðvitað engum til gagns ef stór hópur fólks lendir inni á heilbrigðiskerfinu vegna þess að það vantar lausnir. Við verðum að sjá til þess að fundin verði lausn og að þessir viðkvæmustu hópar, sem þetta bitnar langmest á, komist í skjól og það verði gert fljótt vegna þess að ég veit að það er lífsnauðsynlegt.