154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[17:04]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gríðarlega mikilvægt að ná utan um þessa viðkvæmustu hópa. Það er hins vegar svo að í samfélaginu í Grindavík, eins og mér skilst að það hafi verið byggt upp, hefur fólk notið góðs af því að vera í mikilli nálægð við sína nánustu og jafnvel fólk sem er í viðkvæmri stöðu. Það er auðvitað mjög erfitt þegar fjölskyldur og fleiri aðilar hafa tvístrast. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að það ber að taka þessa áskorun mjög alvarlega og reyna eftir fremsta megni að ná utan um hana. Ég geri fastlega ráð fyrir því að hin nýja framkvæmdanefnd taki svona mál inn á borð til sín og reyni að leysa þau eins fljótt og auðið er. Ég held að ekkert okkar, sem höfum ekki lent í álíka aðstæðum, geti sett sig í spor þeirra sem þarna eru. Þess vegna ber okkur að taka þetta mjög alvarlega og ná utan um þetta.