154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[17:06]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka staðgengli hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir yfirferð á þessu ágæta máli sem felur í sér framlengingu á mikilvægum úrræðum sem því miður virðist enn þá vera rík þörf fyrir og sér í raun ekki almennilega fyrir endann á henni.

Ég held að ástæða sé til að ítreka enn og aftur í tengslum við málefni Grindavíkur að við jafnaðarmenn höfum ríkan vilja til að leggja okkar af mörkum til að skapa þverpólitíska samstöðu í almennu faðmlagi um þetta sveitarfélag. Það er algjört lykilatriði í máli sem þessu. Við ætlum að hafa það mjög framarlega í forgangsröðun ríkisfjármála að tryggja afkomuöryggi Grindvíkinga. Þá hugum við líka að velferðarþjónustu þeim til handa, að húsaskjóli, menntun barnanna þeirra, öryggi barnanna þeirra og hugsanlega í einhverri framtíð að byggð á svæðinu, hvernig sem það fer. Það er ótímabært að henda reiður á því.

Sýn okkar er sú að það náist samstaða þrátt fyrir miklar áskoranir á hinu pólitíska litrófi. Þarna höfum við séð stórkostlega hluti gerast að mörgu leyti síðan í október. Við höfum náð að tryggja öryggi fólks að mestu. Við höfum séð fólk í fremstu víglínu leggja líf sitt í hættu við það að tryggja öryggi okkar og fólksins á svæðinu. Því miður höfum við líka þurft að horfa á eftir fólki. Mannskæð slys hafa átt sér stað í beinum tengslum við aðgerðir. Við kunnum fólki miklar þakkir fyrir þær og vottum aftur aðstandendum þeirra sem hafa týnt lífinu samúð okkar.

Á stundum sem þessum verðum við að hafa hugfast að það verður aldrei nógu þétt tekið utan um fólk sem er í þeirri stöðu að vera flóttamaður í eigin landi. Við ætlum að kalla fram áframhaldandi samtryggingu í þessu máli og pólitíska samstöðu. Svona mál fara hins vegar yfirleitt á þann veg að þegar fram líða stundir þarf að sýna pólitískan vilja í forgangsröðun fjármuna. Þá þarf fólk að sýna á sín spil. Það er fullkomlega eðlilegt að fólk greini á um aðferðir og leiðir við að ná markmiðum sem fram koma, t.d. í frumvarpi sem þessu, sem felast í framlengingu á úrræðum sem við höfum rætt áður í þingsal.

Við verðum samt sem áður að nota tækifærið og skerpa á stöðu þess nú hvernig úrræði hafa gefist í reynd, hvernig fólk hefur fengið þjónustu eða óskað eftir þjónustu sem lög kveða á um að eigi að veita og hvernig því hefur gengið að eiga í samskiptum við fulltrúa sveitarstjórnar Grindavíkur og framkvæmdastjórnar Þórkötlu eða við ríkisstjórnina, fulltrúa hins opinbera og allt þar á milli. Við eigum ekki að þurfa að horfa athugasemdalaust upp á visst svarleysi sem margir Grindvíkingar hafa sagt að sé viðkvæðið. Illa gengur að ná sambandi við fulltrúa stjórnvalda. Svörin eru ekki skýr þegar um stærstu hagsmuni fólks er að ræða. Fyrir utan líf og limi fólks er það húsnæði og afkomuöryggi. Tvísýn svör um óljósan vilja geta oft og tíðum verið verri en svör sem fólk átti ekki von á að fá. Við skiljum hins vegar öll að það er ekki allt hægt. Einhvers staðar verðum við að vera með línu í hinn margumtalaða sand. Við eigum öll skilið að njóta góðra samskipta við fulltrúa hins opinbera. Hér á landi gilda upplýsingalög, sem kveða á um ákveðinn málshraða, og stjórnsýslulög. Þetta eru mannanna verk. Það er hægt að taka það til sín og það eru ábendingar um það að línan þurfi að vera virk.

Mér finnst rétt í sambandi við þessi úrræði sem við ræðum hér í dag, m.a. varðandi húsnæðisstuðning og um uppkaup á húsnæði, að vitna í umræðu sem átti sér stað hér í nóvember í tengslum við þau lög. Þar vil ég vitna í ræðu hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur, samflokkskonu minnar, sem staðið hefur vaktina í þessum málum með okkur sem fulltrúi Suðurkjördæmis. Ein mælistika hentar ekki öllum. Þetta vitum við. Frumvarpið hefur hins vegar hentað þeim vel sem hafa kosið að fara þá leið að óska eftir uppkaupum á eigin húsnæði. Við höfum ekki séð fyrir endann á því máli. Ríkisstjórnin verður að átta sig á því að það eru ekki annarlegar hvatir sem ráða því að við í stjórnarandstöðunni fylgjumst vel með því hvernig þjónustan er veitt og hvernig notendum þjónustunnar er svarað. Það er mjög eðlilegt að gera það. Í því felst ekki efnisleg gagnrýni á þau úrræði sem eru í boði. Ef við sjáum að hópar dragist aftur úr í keðjunni og að nýir jaðarhópar verði til hljótum við að láta í okkur heyra. Ég ætla hins vegar ekki að vera með stórar fullyrðingar um slíkt núna. Við erum enn þá að horfa upp á framkvæmd úrræðisins. Við erum á tánum. Ég veit að ríkisstjórnin er ákaflega þakklát fyrir það aðhald sem við ætlum að sýna í því máli.

Ég vil nota tækifærið í tengslum við þetta mál og benda á að sértækar aðgerðir fyrir Grindavík eru gífurlega mikilvægar. Það er eiginlega ekki hægt að koma inn á málaflokk húsnæðismála hér á landi án þess að grípa þann bolta sem við í Samfylkingunni höfum talað fyrir sem lýtur að því sem er mikilvægt að ráðast í í ríkisfjármálum. Það eru aðgerðir sem eru til þess fallnar að hafa raunveruleg áhrif á sífellt hækkandi leiguverð. Það er löngu kominn tími til þess að við lögfestum leigubremsu að danskri fyrirmynd. Hægt er að gera það með því að setja lög um hömlur á árlegri hækkun leigufjárhæðar. Það mun hafa áhrif á framboð leiguhúsnæðis. Staðan er sú að ekki er sjálfbær aukning framboðs á leiguhúsnæði vegna gífurlegrar verðbólgu sem við þurfum að ná stjórn á. Sérstakar aðstæður sem þessar hella olíu á eldinn í annars annarlegu ástandi á tímum húsnæðiseklu og mikillar fólksfjölgunar. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að einhvern tíma náist jafnvægi á leigumarkaði.

Órói á húsnæðismarkaði er títtnefnt hugtak í þessum sal. Við höfum ekki náð nægilega góðri sátt hér inni um aðferðir sem eru vænlegastar að settu marki. Við höfum erlendar fyrirmyndir þar sem allar forsendur eru fyrir hendi fyrir því að þær gefist vel hér á landi líkt og annars staðar. Að benda á það felur ekki í sér að við gerum lítið úr sérstöðu Grindvíkinga, öðru nær. Þessar aðgerðir myndu ekki síst gagnast þeim sem eru ekki í eigin húsnæði, þurfa að reiða sig á framboð á hinum almenna leigumarkaði og eiga þess ekki kost að komast inn í félagslega kerfið vegna þess að séreignarstefnan hefur sigrað. Við getum breytt þessu. Við höfum ekki stjórn á jarðhræringum og jarðeldum en við getum náð stjórn á húsnæðismarkaði að einhverju leyti og beint honum í rétta átt. Það er bara pólitískur vilji.

Ég má til með að beina orðum mínum til Grindvíkinga, sem mögulega fylgjast með, og segja: Þetta er langhlaup. Þetta hafa þau margoft heyrt en við vitum af því og ætlum ekki að gleyma því. Við vitum að fjölmörg ykkar eru ekki komin í varanlegt húsnæði, eru ekki komin í vinnu sem hentar ykkur og vita ekki hvernig börnum ykkar mun reiða af næstu misseri. Okkur langar innilega til að geta veitt ykkur þessa vissu. Að vita ekki í hvorn fótinn maður á að stíga inn í framtíðina er óbærileg staða. Okkur verður tíðrætt hér á þingi um samstöðu með ykkur og erum með gífurlegar fullyrðingar í þá átt. Ég ætla samt að fá að segja, þótt það sé ekki endilega reyndin nú, að sá tímapunktur kemur að leiðir skilji og við munum mögulega ekki ná fullkominni samstöðu eða nógu mikilli pólitískri samstöðu um það hvaða leiðir eru bestar til að ná þeim markmiðum sem við viljum ná fram fyrir ykkur.

Að þessu sögðu vil ég ítreka að ég tel að framlenging þessara úrræða sé af hinu góða og fagna henni. Ég ítreka, og beini orðum mínum sérstaklega til framkvæmdanefndarinnar sem fer nú með verkefni sveitarstjórnar Grindavíkur upp að vissu marki, að virða þarf málshraða. Fólk þarf að upplifa að það eigi beint talsamband við ykkur. Það þarf að huga að málefnum sem lúta að því að sveitarstjórnin, þ.e. fulltrúar bæjarskrifstofu Grindavíkur, og fulltrúar framkvæmdanefndarinnar séu mögulega á sama svæðinu en kannski ekki í sama húsnæði. Að fólk þurfi ekki að fara fram og til baka í leit að svörum er mjög mikilvægt.

Að öðru leyti vil ég hafa þau lokaorð í þessum ræðustúf að Grindavík á allt gott skilið en við verðum að átta okkur á því að einhvers staðar verða línur dregnar í sandinn. (Forseti hringir.) Við teljum hins vegar aftur ástæðu til að fagna því að hér séu frestir framlengdir.