154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[17:22]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir sína ræðu og sína sýn á þetta málefni og tek auðvitað undir stuðningskveðjur til Grindvíkinga. En mig langaði að spyrja hv. þingmann út í það sem ég spurði hæstv. ráðherra út í áðan í andsvörum sem snýr að þeirri yfirlýsingu sem er að finna í greinargerð með frumvarpinu um að ekki standi til að framlengja þessi úrræði frekar og að hvergi sé nein svör að fá frá ríkisstjórninni um hvað taki þá við fyrst það standi ekki til að framlengja þessi úrræði neitt frekar. Ég velti því upp og bið hv. þingmann um að velta því fyrir sér með mér hvað þetta þýði eiginlega fyrir ja, framtíðarsýn Grindvíkinga um hvað taki á móti.

Hv. þingmaður fór svolítið yfir það í sinni ræðu að einhvern tímann yrði dregin lína í sandinn gagnvart þessum úrræðum. Telur hún tímabært að það sé gert hér og nú með því að þessum úrræðum ljúki? Finnst henni nóg að gert? Eða getur hún tekið undir þá kröfu sem ég og t.d. hv. þm. Guðbrandur Einarsson höfum gert um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, sem er auðvitað í samræmi við vilja fólks með atvinnurekstur á svæðinu, mjög skýran og eindreginn vilja sem við höfum fengið fjöldann allan af tölvubréfum um þar sem þessum óskum er komið á framfæri? Telur hún rétt að þetta sé skoðað? Nú er einhver starfshópur í gangi en mér finnst óþægilegt að ekki sé búið að kveða fastar að orði um það hvort nokkru sinni standi til að fara í uppkaup á atvinnuhúsnæði og líka þetta með þá afgerandi afstöðu í greinargerðinni að það standi ekki til að framlengja frekar þessi úrræði sem nú er verið að framlengja. Þetta tvennt vil ég biðja hv. þingmann um að velta fyrir sér með mér.