breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég kom kannski ekki nógu skýrlega inn á það í minni ræðu hér en ég held að það sé full ástæða til að gjalda varhuga við fullyrðingum um að það verði kannski ekki forsendur til þess að framlengja þessi úrræði. Við sjáum það bara núna í öðrum málaflokki sem lýtur að fullnustumálum hér á landi að bráðabirgðaúrræði sem var sett á laggirnar 2021 um samfélagsþjónustu til að tryggja að það yrði hreinlega nægilegt framboð á fangelsisrýmum, það verður t.d. að fara að framlengja það, illu heilli vegna þess að við viljum auðvitað frekar að kerfið fúnkeri. Auðvitað hef ég skilning á því upp að vissu marki að ríkisstjórnin telji raunhæft að vera búin að ljúka verkefninu innan þess tímaramma sem hún setur sér í þessu frumvarpi. Hef ég ástæðu eða forsendur til að kveða upp úr um það hér og nú að það verði ekki reyndin? Nei. Ég ætla ekkert að segja að ég sé að reyna að vera sanngjörn en ég held að það sé alveg klárt mál að við munum láta í okkur heyra ef verkefninu verður ólokið, ef því verður þá lokið, tökum þá bara stöðuna þegar þar að kemur.
Varðandi hið síðarnefnda, uppkaup á atvinnuhúsnæði, þá held ég að það sé algerlega ljóst frá mínum bæjardyrum séð að við þurfum, án þess að gera lítið úr afkomuöryggi fólks eins og ég kom inn á í ræðu minni, að vera með fjölskyldur í fanginu fyrst, án þess að ég vilji nokkuð gera lítið úr því að fólk þurfi auðvitað að geta haft hér fyrirsjáanleika í atvinnumálum sínum.