breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Nú er ég aðeins að reyna að lesa í orð þingmannsins þegar hún segir að við eigum að taka fjölskyldur í fangið fyrst. Ég get alveg tekið undir það. Það var gert og það er svolítið síðan það ferli fór af stað, að hafin voru uppkaup á húsnæði í eigu einstaklinga og fjölskyldna. En ákallið sem hefur borist okkur í okkar pósthólf hefur ekki síst verið frá fjölskyldufyrirtækjum þar sem afkoma fjölskyldna er undir og þeirra eindregna ósk hefur verið að farið verði í uppkaup á atvinnuhúsnæði. Þannig að það sem ég er að velta upp er að það hefur í raun ekkert heyrst frá stjórnarliðum, frá ríkisstjórninni, hvort standi til að verða við þessari ósk eða ekki og eftir sitja margar fjölskyldur í algjörri óvissu um hvað taki við. Þegar við tökum þetta í samhengi við að nú er búið að lýsa því yfir að þessi úrræði eigi að renna út á þessu ári — vitum við að það er ekki þörf fyrir þau lengur þá? Nei, við vitum það ekki og við erum ekki með nein í raun fyrirheit um að það taki eitthvað annað við heldur. Ég reyndi a.m.k. að fá það fram og fékk ekki fram annað en að það væri mikilvægt að hlusta. En ég tel að ef við værum að hlusta þá værum við farin af stað með aðgerðir um uppkaup á atvinnuhúsnæði vegna þess að það er það sem lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík hafa eindregið verið að kalla eftir. Ég veit ekki hvað ég er með marga tölvupósta í mínu pósthólfi þar sem er farið eindregið fram á þetta og kem ég betur inn á það í minni ræðu á eftir.
Þannig að ég spyr hv. þingmann: Er ég að skilja það rétt að henni finnst ekki orðið tímabært að skoða uppkaup á atvinnuhúsnæði í Grindavík?