breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvar. Ég vil að það sé alveg kýrskýrt hér að að sjálfsögðu tel ég ástæðu til að skoða gaumgæfilega hverjar framtíðarhorfur verða fyrir atvinnurekstur þeirra sem hafa stundað hann í eigin húsnæði í Grindavíkurbæ, að sjálfsögðu. Hins vegar legg ég áherslu á það, og það var kannski ástæða til að hlusta líka á það sem fram kom í ræðu minni hér áðan, að það er einmitt nákvæmlega þetta sem fólk þarf að fá að vita. Fólk þarf svör, ekki bara um stöðu umsóknar heldur líka um pólitískan vilja ríkisstjórnarinnar. Við erum hreinlega að kalla eftir honum hér. Það er kjarninn í því sem ég hef verið að segja hér, vegna þess að við erum auðvitað komin á þann stað að samstaðan um að hjálpa Grindvíkingum — jú, hún er enn þá til staðar. Það er ekki nokkur einasti þingmaður sem hefur komið hér fram og sagt: Nú er fókusinn á Grindavík of mikill. Enginn. En við förum að nálgast þann tímapunkt þar sem þarf að sýna á pólitísk spil. Hvenær er línan dregin? Ég ætla ekki að draga þessa línu, ef ég á að segja alveg eins og er. Það er bara ekki mitt að gera. Mitt er hins vegar að veita ríkisstjórninni mátulegt aðhald í því að vera skýr um það hvað sé raunverulega vilji hennar að gera. Þannig að nei, ég færi aldrei að leggjast gegn því að taka með málefnalegum og sanngjörnum hætti sérstaklega á atvinnumálum í Grindavík, með þeim hætti að þau mörgu blómlegu fyrirtæki sem þar voru geti áfram starfað á nýjum forsendum annars staðar. Þetta er bara stórt verkefni (Forseti hringir.) vegna þess að atvinnumál eru annars eðlis (Forseti hringir.) en fjölskyldumál og það er hreinlega efni í aðra umræðu sem ég hlakka til að taka á öðrum vettvangi.