breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni kærlega fyrir spurninguna, andsvarið. Stjórnvöld bera ábyrgð á því að setja umgjörð utan um íbúðamarkaðinn. Ég áttaði mig svo sem ekki á því nákvæmlega hvort hv. þingmaður var að tala um framboðshliðina sérstaklega fyrir hóp Grindavíkurbúa. Við erum þá ýmist að tala um uppbyggingu á einingahúsum, þessum eiginlegu Viðlagasjóðshúsum sem voru reist hér í tengslum við Eyjagosið á sínum tíma, eða bara framboðshliðina almennt. Það er alveg morgunljóst varðandi hið fyrra að ef við ætluðum að fara í massífa uppbyggingu á húsnæðismarkaði fyrir Grindavíkurbúa sérstaklega þá yrði það mjög tímafrekt að gera per se, þ.e. þó að við myndum panta einingahús í dag yrðu slík hús kannski ekkert tilbúinn til notkunar fyrr en eftir einhver misseri. Í fullkomnum heimi myndi þetta auðvitað gerast öðruvísi. En þess vegna höfum við rætt þetta dálítið og staðreyndin er sú að við aukum á framboðshliðina fyrir alla landsmenn, sem kæmi ekki síst Grindvíkingum til góðs, t.d. með því að styðja rækilega við almenn leigufélög í landinu. Það er krefjandi í hávaxtaumhverfi en það er hægt. Og ekki síst, líkt og ég kom inn á í ræðu minni, eru mikil tækifæri fólgin í því að stuðla hér að leigubremsu að erlendri fyrirmynd sem hefur gefið mjög góða raun og sem ég legg til að verði skoðuð alvarlega.