breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég átti við á því svæði þar sem áhrifin koma fram, sem er þá á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Eins og ég skil húsnæðismarkaðinn er töluvert af tómu íbúðarhúsnæði sem selst ekki og það er náttúrlega hægt að virkja það með ýmsum úrræðum þegar við erum að tala um neyðarástand á húsnæðismarkaði. Ég tek líka undir með hv. þingmanni um leigubremsuna, að þegar það kemur skyndileg eftirspurn sem keyrir upp verðið, eins og við erum að tala um hér, mjög háar tölur, rúmar 200 millj. á mánuði, þá er sjálfsagt að beita leigubremsu þar sem eftirspurnaraukningin leiðir ekki beinlínis til hækkunar. Það er ekki aukinn kostnaður við útleigu.
En mig langar að spyrja hv. þingmann í seinna andsvari um það sem mér finnst mjög áhugavert í þessu frumvarpi. Við erum að tala hérna um frumvarp sem í eru þrír kaflar; um breytingu á lögum um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík, breytingu á lögum um sértækan húsnæðisstuðning og svo um tímabundinn stuðning til greiðslu launa. Þegar maður skoðar útreikninginn við tímabundinn rekstrarstuðning þá er verið, eins og kemur fram í frumvarpinu, að styrkja fyrirtækin svo þau geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný með stuttum fyrirvara. Fyrir ári var a.m.k. 40% tekjufall. En hvernig er þessi rekstrarstuðningur reiknaður út? Jú, hann er reiknaður út með því að hámarksstyrkur er margfeldi af 600.000 kr. og fjölda stöðugilda, að hámarki tíu, og svo tekjufall viðkomandi almanaksár. Þannig að það er tekið tillit til stöðugildanna, hversu margir starfsmennirnir eru. (Forseti hringir.) Síðan er það tímabundinn styrkur til greiðslu launa. Af hverju er það ekki saman? Ég hefði haldið að þetta ætti að vera saman. (Forseti hringir.) Ég get ekki séð annað en að launin séu mikilvægur þáttur í rekstrarstuðningi. (Forseti hringir.) Teldi hv. þingmaður ekki rétt að taka tillit til rekstrarstuðningsins (Forseti hringir.) og launastuðningins sameiginlega?
(Forseti (ÁsF): Ég minni ræðumenn á tímann sem þeir hafa.)