breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni um að það sé alltaf ákjósanlegt að hafa gegnsæi í fyrirrúmi þegar kemur að útreikningsaðferðum í tengslum við þetta mikilvæga mál. Ég átta mig í sjálfu sér ekki alveg á því hvers vegna hlutirnir eru reiknaðir með þessum hætti. Ég tel að það séu jafnvel líkur á því að það sé útskýrt betur í upprunalegum frumvörpum sem þessi breytingalög hafa áhrif á. Ég ætla ekki að vefengja forsendurnar sem eru lagðar til grundvallar í tengslum við þennan tiltekna útreikning en legg hins vegar bara sama skilning í það og hv. þingmaður, að það sé mjög alvarlegt vandamál, svo ég komi aftur inn á húsnæðismálin, þegar íbúðir standa auðar og seljast ekki. Við höfum heldur ekki nægilega mikla yfirsýn yfir nákvæmlega hversu margar íbúðir þetta eru. Við höfum auðvitað tekist á um það í þingsal að það séu of margar íbúðir nýttar undir ferðaþjónustu í skammtímaleigu en við höfum séð viðleitni hjá ríkisstjórninni í þá átt að reyna að takmarka það. Við hjá Samfylkingunni höfum viljað ganga lengra en við erum meðvituð um þetta vandamál þannig að ég held að það sé alls ekki verið að tala niður þann sértæka vanda sem Grindvíkingar standa frammi fyrir þegar við nefnum að nú þegar hafi verið lagðar til drastískar leiðir til að koma böndum á ólgu á húsnæðismarkaði að því er varðar skort á framboði á hentugu húsnæði sem felur í sér öryggi (Forseti hringir.) og búsetuöryggi fyrir fjölda fólks um allt land, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu.