breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér um framlengingu á úrræðum til stuðnings íbúum og fyrirtækjum í Grindavík. Það er ágætt að það sé verið að framlengja þessi úrræði en eins og ég hef komið inn á í andsvörum mínum þá vekur það talsverðar áhyggjur af minni hálfu að fram komi í greinargerð með frumvarpinu að ekki standi til að framlengja þessi úrræði frekar. Það vekur enn frekari áhyggjur að ekkert hefur heyrst né frést af því hvað gera á fyrir atvinnuhúsnæði í Grindavík, þ.e. eigendur atvinnuhúsnæðis í Grindavík.
Ég heyrði það á máli hæstv. staðgengils fjármálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, að það væri mikilvægt að hlusta á fólkið í Grindavík og þarfir þess og að ríkisstjórnin léti nú ekki á sér standa, og nú er ég að umorða orð hæstv. ráðherra, þegar kæmi að stuðningi við Grindavík. En nú verð ég að fá að halda þessu mjög skýrt fram: Lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík hafa verið með neyðaróp gagnvart stjórnvöldum þessa lands í gangi allan maímánuð og mánuðina þar á undan með þá eindregnu ósk að atvinnuhúsnæði þar sem ekki er forsenda fyrir áframhaldandi rekstri í Grindavík, sem á við um mjög mikið af atvinnuhúsnæði, verði keypt upp líkt og gert var með íbúðir einstaklinga.
Ég vil leyfa mér að vitna í nokkur af þessum bréfum sem við fengum sem ég veit og sé af viðtakendalistanum að ráðherrarnir fengu líka. Ég ætla ekki að nafngreina neinn og ég ætla ekki að tiltaka þær ítarlegu upplýsingar sem við þingmenn og þar með ríkisstjórnin höfum fengið um stöðu hvers og eins, ég er bara hér að reyna að lýsa þeirri mynd sem hefur verið dregin upp fyrir okkur, þannig að ef ríkisstjórnin væri að hlusta þá væri löngu farið af stað með uppkaup á íbúðarhúsnæði. Hefst nú lesturinn, með leyfi forseta:
„Það vantar ekki að hvert sem við höfum komið og átt fundi með hefur okkur mætt óhemjumikill skilningur og samúð en það dugar ekki til að greiða skuldirnar okkar.“
Önnur tilvitnun, með leyfi forseta:
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem agnarlítið fjölskyldufyrirtæki að fá langtímaúrræði til að við getum byrjað nýtt líf á nýjum stað í kjölfar náttúruhamfara síðustu mánaða. Í dag, föstudaginn 10. maí, eru sex mánuðir síðan litla fjölskyldufyrirtækið okkar var síðast opið. Við misstum öryggi okkar fjölskyldunnar og það styttist í að martröðin haldi áfram og við gefum upp öndina í rekstrinum því eigið fé hverfur hratt og vonin dofnar með hverjum deginum. Það er átakanlegt að fara um bæinn og sjá eyðilegginguna sem hamfarirnar hafa valdið, sjá varnargarðana sem umlykja bæinn, hraunið sem er inni í bænum eftir gosið 14. janúar og finna brennisteinslyktina og síðast en ekki síst að horfa ævistarfið fjara út.“
Annar Grindvíkingur sendi okkur, með leyfi forseta:
„Ríkis- og bankastofnunum verður ekki í náinni framtíð gagn af tómum húsum gjaldþrota fyrirtækja í Grindavík en hugsanlega felast tækifæri í einstaklingum sem þora, kunna og vita hvernig á að reka fyrirtæki sem skapa þjóðartekjur. Þess vegna felast nýir möguleikar í uppkaupum eigna sem veita einstaklingum og fyrirtækjum ný tækifæri til atvinnustarfsemi til aukinna þjóðartekna.“
Annar Grindvíkingur skrifaði okkur:
„Ég óska eftir því að verða leystur undan þessum hremmingum í bænum þar sem engar forsendur eru fyrir rekstri í bæjarfélagi sem enginn býr í og lítil sem engin starfsemi er í.“
Enn annar sendi:
„Við þurfum úrræði og það strax. Okkur er að blæða út bæði andlega og fjárhagslega.“
Annar Grindvíkingum sendi okkur:
„Ég sit uppi með rekstur á eign, afborganir af lánum sem ég hef ekki getað búið til neinar tekjur þar og á meðan staðan er svona er mér ómögulegt að hefja rekstur annars staðar.“
Önnur frá Grindavík sagði:
„Reikna má með að fyrirtækið fari í gjaldþrot í lok árs ef ekkert verður gert til að aðstoða mig. Við sem við eigum lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík þurfum á ykkar stuðningi og hjálp að halda svo við getum haldið áfram að gefa af okkur til alls samfélagsins.“
Enn annar skrifaði:
„Við sitjum því uppi með öll gjöld af húsnæðinu til æviloka og sjáum því enga leið út úr þessu aðra en að óska eftir uppkaupum á þessu atvinnuhúsnæði svo við getum haldið áfram með okkar líf.“
Áfram fáum við bréf þar sem segir, með leyfi forseta:
„Fyrirtæki gætu því flutt starfsemina frá Grindavík ef stuðningur fengist. Þess vegna leggjum við eftirfarandi úrræði til um aðstoð við uppbyggingu og það eru uppkaup á húsnæði í Grindavík.“
Annar sagði:
„Nú eru smáfyrirtækin látin sitja eftir í súpunni. Hvað er þetta land án fyrirtækja, fólks sem er að skapa verðmæti? Við erum hér enn þá, sex mánuðum seinna, með sárt ennið, látin blæða endalaust út.“
Áfram halda bréfaskrifin. Þetta eru tugir bréfa sem við höfum fengið frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Grindavík sem vita nákvæmlega hvað þau vilja og það þarf ekkert að hlusta meira til að vita hvert svarið er, með leyfi forseta:
„Heft aðgengi að Grindavík til dagsins í dag hefur kippt öllum rekstrargrundvelli undan rekstrinum. Eigendur sjá því engan annan kost en að leggja veitingareksturinn niður og hætta starfsemi.“
Áfram heldur lesturinn:
„Mér líður eins og ég sé stödd á sýningu sem heitir Lífið stendur í stað nema ég borgaði minna fyrir mitt sæti og þar af leiðandi á ég ekki sama rétt og aðrir. Hafðu hljóð, ekki vera með læti. Þú átt ekki rétt á áheyrn, suss.“
Þessi ósk um áheyrn barst okkur einnig, með leyfi forseta:
„Það er von okkar að þið sem þetta lesið og hafið valdið til að hjálpa okkur sjáið hversu vonlaus staða okkar er og gerið allt sem í ykkar valdi stendur til að bjarga okkur út úr þessu. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að síðan í janúar hefur gosið tvisvar og enn stendur síðasta gosið yfir og enn rís land í Svartsengi. Framtíðin er því ekkert að skýrast hjá okkur og litlar líkur á að við getum komið eign okkar í leigu eða hafið aðra framleiðslu.“
Og að lokum, en þetta er alls ekki tæmandi talið af þeim bréfum sem við höfum fengið frá Grindvíkingum, virðulegi forseti:
„Við vonum að ráðamenn sýni réttlæti og framtíðarsýn með því að leyfa uppkaup á íbúðarhúsnæði einnig frá lögaðilum og þar með leyst hömlur svo að þessir aðilar geti haldið áfram að skapa verðmæti og stuðlað að uppbyggingu Íslands.“
Þetta er, eins og ég sagði, virðulegi forseti, einungis brotabrot af þeim tölvupóstum sem öllum ráðherrum þessarar ríkisstjórnar og öllum þingmönnum þessa þings hafa borist frá íbúum Grindavíkur sem hafa borið fram þessa eindregnu ósk um að vera leyst undan eign sinni á atvinnuhúsnæði í Grindavík til að geta haldið áfram með lífið, til þess að geta byrjað að skapa verðmæti annars staðar, til að geta byrjað að reikna út hvað framtíðin hefur í för með sér, til að hafa einhvers konar fyrirsjáanleika og til að sjá ekki ævistarfið fjara út með hverjum mánuðinum sem líður af aðgerðaleysi þessarar ríkisstjórnar þegar kemur að atvinnustarfsemi í Grindavík og svaraleysi og sinnuleysi gagnvart þessum mikilvæga hópi. Það þýðir ekkert að segjast ætla að hlusta þegar maður hlustar svo ekkert. Það þýðir ekkert að segja að maður sé boðinn og búinn en gera svo ekkert. Það er auðvitað algjört kjaftæði, virðulegi forseti, á hreinni íslensku.
Eins og ég hef komið inn á er ágætt út af fyrir sig að það eigi að framlengja þessi úrræði sem við erum að ræða hér og þau hafa verið ágæt til síns brúks en þau eru plástrar á eitt stórt svöðusár. Í ljósi þess að þarna er lýst yfir að það standi ekki til að framlengja þau þá þarf að svara hvað á að taka við þegar þessum frestum sem eru lagðir til í þessu frumvarpi lýkur. Hvað á þá að taka við? Ekkert svar frá ríkisstjórninni. Við Píratar munum auðvitað halda áfram að krefjast svara gagnvart þessu. Við lítum svo á að í neyðarástandi sem þessu, þar sem það eru stjórnvöld sem beinlínis reka fólk af svæðinu og meina því aðgengi um það — skiljanlega, það eru náttúruhamfarir í gangi á svæðinu — beri þessi stjórnvöld ríka ábyrgð gagnvart þeim sem þar hafa rekstur, gagnvart þeim sem þar búa að vera dugleg í upplýsingagjöf og koma sem mest og sem best til móts við það tap sem þau hafa orðið fyrir vegna aðgerða stjórnvalda. Það er okkar grundvallarskilningur á því hvað jafn íþyngjandi og umfangsmiklar aðgerðir sem þær sem hafa verið gagnvart Grindavík ættu að hafa í för með sér. Það er mjög mikilvægt að upplýsingagjöf sé með sem bestum hætti, að gagnsæi um fyrirætlanir stjórnvalda sé eins og best verður á kosið. Það hefur ekki verið þannig þegar kemur að Grindavík. Svarað hefur verið með þögn. Búnir hafa verið til samráðshópar sem síðan er ekki hlustað á. Tekið er á móti tölvupóstum sem fá ekki meiri áheyrn en það að fólk segist vera að hlusta á hluti sem er augljóslega ekki verið að hlusta á.
Áður en ég lýk máli mínu, virðulegur forseti, í þessari 1. umræðu um þetta annars ágæta mál þá vil ég koma inn á hvernig gengur með uppkaup á íbúðarhúsnæði Grindvíkinga vegna þess að við fáum líka upplýsingar frá Grindvíkingum um að þau hafi fengið samþykkt kaup á íbúðarhúsnæði en síðan heyrist ekkert meir og fólk situr áfram fast á leigumarkaði. Fólk situr áfram fast í algerri óvissu um hvenær það fái greitt fyrir eignirnar sínar. Það veit ekki hvenær það losnar úr snörunni. Nú á það við um bæði fólk sem er að fá loksins samþykkt uppkaup á íbúðarhúsnæði en auðvitað einna helst gagnvart þeim eigendum atvinnuhúsnæðis á svæðinu sem hafa engin svör fengið um hvað taki við, um hvað eigi að gera með eignir þeirra sem hrapa á meðan í verði og fólk þarf áfram að borga skuldir af og rekstur af. Þetta er ekki sjálfbært, virðulegi forseti. Þetta er ekki skynsamleg nálgun. Það hlýtur að þurfa að eiga sér stað stærra og betra samtal og meiri og sterkari aðgerðir sem miða beint að því að koma til móts við þennan hóp sem var skilinn eftir í aðgerðunum síðast og þá heyrði ég fögur fyrirheit um að þetta ætti allt að skoða og það yrði eitthvað gert og eitthvað athugað með fyrirtækin í Grindavík. Síðan þá hefur lítið sem ekkert heyrst varðandi þau efni. Það er þar af leiðandi eðlilegt að spyrja: Hvenær fá Grindvíkingar svör um þetta, hvað bíður þeirra og atvinnuhúsnæðisins þeirra? Vegna þess að við vitum að það er mikið hugvit og mikill kraftur í fyrirtækjaeigendum í Grindavík sem vilja endilega koma upp sinni starfsemi á öðrum vettvangi og við hljótum að hafa hugmyndaauðgina til að standa við bakið á þeim og hugrekki og réttsýnina eins og kallað var eftir til að stíga þetta skref.
Ég verð auðvitað að hryggja Grindvíkinga með því að það eru innan við tvær vikur í þinglok og líkurnar á því að eitthvað verði ákveðið eða afráðið um uppkaup á atvinnuhúsnæði í Grindavík fyrir þessi þinglok eru, hvað eigum við að segja, 0,5%. Það segi ég bara af gefinni reynslu. Þegar komið er svona nálægt þinglokum eru hugmyndir frá stjórnarandstöðuþingmönnum sem eru þetta kostnaðarmiklar ekki að fara að eiga upp á pallborðið. Þannig er það nú bara. Ég tel mjög mikilvægt að við setjum töluvert meiri þrýsting á stjórnarliða og ríkisstjórnina heldur en við höfum gert fram að þessu um að taka loksins af skarið og að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki að komast úr þeim hlekkjum sem þau upplifa sig svo sannarlega í í Grindavík og það sem allra fyrst.