154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[17:54]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Af því að þingmaðurinn er lögfræðingur langaði mig að velta upp atriði sem ég hef stundum hugsað um. Við höfum í rauninni verið öll mjög samstiga um að grípa til þeirra aðgerða sem boðaðar höfðu verið. Síðan getum við haft skoðanir á því sem þingmaðurinn vék að, hvort við séum að gefa fólkinu þarna nægan fyrirsjáanleika og mér fannst svör ráðherrans ekki vera mjög skýr þar.

Við upphaf atburða er fólki gert að rýma svæðið vegna almannaheilla. Það kemur í ljós að þetta er viðvarandi ástand yfir einhvern langan tíma þannig að fólkinu, til að lágmarka tjón, er boðið upp á það að selja ríkissjóði húsin sín og ég studdi það og styð það. En menn mega ekki gleyma því að við þá aðgerð var ríkið að hvetja fólk til að flytja burt úr bæ þar sem eru starfandi fjölmörg fyrirtæki. Og maður spyr sig, og þetta er einhver lögfræði kannski, hvort þessi fyrirtæki eigi ekki að hafa einhverjar lögmætar væntingar um það að þegar markaðsbresturinn verður eiginlega vegna aðgerða stjórnvalda þá sé komið frekar til móts við þau heldur en gert hefur verið.