breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Þetta eru lögmætar vangaveltur hjá hv. þingmanni og ég þykist ekki ætla að geta úttalað mig um það hér hvernig nákvæmlega því er snúið. Það sem ég var að reyna að benda á er að vegna þess að þetta almannavarnaástand verður til, þessi mikla hætta sem þarna skapast, þá myndast um það ákveðnar þvingandi aðgerðir stjórnvalda, þó að þær eigi auðvitað fullkominn rétt á sér, og hefði verið eitthvað óeðlilegt ef ekki. Í því samhengi myndast auðvitað ákveðin ábyrgð á ríkissjóði sem er í raun að segja fyrir um að leggja niður ákveðna starfsemi í bænum, að loka fyrir umferð um bæinn o.s.frv. og auðvitað er að vissu leyti ekki einu sinni hægt að fara um bæinn.
Það sem ég hef verið að benda á í þessu samhengi er að fólk sem er með rekstur í Grindavík á rétt á skýrum svörum. Það á rétt á að ríkisstjórnin svari af eða á hvort hún ætli að fara í þessi uppkaup. Ég óttast að svarið sé nei, þau séu bara ekki tilbúin að segja það upphátt. Það er mín tilfinning að svarið sé svo sannarlega nei og það standi ekki til að leysa fólk undan gríðarlegum fjárfestingum sem það hefur farið í og uppbyggingu sem það hefur verið í og vinnu sem það hefur lagt í sín fyrirtæki og að fólk verði látið sitja í súpunni varðandi það. Ég sé það einfaldlega sem snarvitlausa hagfræði að koma ekki til móts við þessi fyrirtæki og hjálpa þeim að byggja sig upp einhvers staðar annars staðar en skilja fólk frekar eftir í skuldasúpu og sárum í raun án þess að geta komið undir sig fótunum á ný og geta hafið atvinnustarfsemi á ný. Mér finnst það bara helber vitleysa. Hvort það er einhver lagaleg skylda eða ábyrgð sem myndast — ég myndi bara mjög gjarnan vilja fá mjög skýra álitsgerð um það þar sem fólk færara í skaðabótarétti heldur en ég myndi taka það til skoðunar.