154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:01]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi svör ráðherrans þá verð ég að segja að mér finnst þau bara í takt við það sem ég hef upplifað sem línuna innan stjórnarliða gagnvart sérstaklega uppkaupum á atvinnuhúsnæði en líka bara almennt aðgerðum til stuðnings Grindvíkingum, sem er að tala mjög almennt um stuðning við Grindvíkinga og að það sé mikilvægt að styðja við Grindavík og að auðvitað verði komið til móts við Grindvíkinga og einmitt tökum samtalið áfram og höldum áfram að tala en segjum sem minnst um hvað við ætlum að gera. Þetta hefur verið mín upplifun þegar þessi úrræði eða a.m.k. hluti þessara úrræði sem við erum að framlengja núna — það er búið að setja þau öll saman í eitt frumvarp núna. Þetta voru að mig minnir þrjú mismunandi frumvörp eða a.m.k. tvö þegar við vorum að afgreiða þetta fyrst en nú er þetta allt komið í einn framlengingarpakka. Þegar við vorum að taka þessar umræður fyrr í vetur þá fannst mér sama hljóðið vera uppi á teningnum þar frá t.d. formanni efnahags- og viðskiptanefndar og öðrum stjórnarliðum í þeirri nefnd þegar ég var að reyna að falast eftir því hvað tæki svo við og hvað við ætluðum að gera varðandi atvinnuhúsnæðið og hvernig við ætluðum að bregðast við frekari þörfum á stuðningi og hvernig tímaplanið væri gagnvart því o.s.frv. Það hefur alltaf verið mjög erfitt að fá skýr svör varðandi það og það er kannski einna helst það sem ég hef verið að gagnrýna, að stjórnarliðar fást ekki til að svara með heiðarlegum og beinskeyttum hætti hvað stendur til. Að því sögðu þá veit ég að það var einhver starfshópur og er einhver starfshópur að störfum sem hefur verið að kynna skýrslu fyrir ráðherrahóp um samræmingu mála og eitthvað er í gangi þar. Þetta er hluti af því. En ég hef ekkert heyrt um uppkaup á atvinnuhúsnæði og mér finnst mjög mikilvægt að sú umræða fái alla vega að eiga sér stað hérna inni í þingsal, að við tökumst á um hvort það eigi að gera þetta eða ekki en hættum einhvern veginn að humma þessa spurningu fram af okkur.