154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:04]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og kannski sérstaklega það að vekja athygli á því sem stendur í greinargerðinni, í lið nr. 2, um að:

„Ekki eru uppi áform um að framlengja frekar umrætt tímabil umfram þann tíma sem gert er ráð fyrir í frumvarpi þessu.“

Fyrir mitt leyti kemur á óvart að sjá þetta af því að hér hefur því verið haldið á lofti alveg frá því að atburðirnir hófust að það yrði staðið með Grindvíkingum. Ef það á að fara að tímasetja þennan stuðning á þennan hátt þá liggur það fyrir að stór hluti fyrirtækja í Grindavík fer bara þráðbeint á hausinn. Þau eru auðvitað mörg komin fram á bjargbrúnina nú þegar en hafa geta hangið mörg hver vegna þó þeirra styrkja sem hafa verið til staðar í þessum rekstrarstyrkjum og launastuðningi sem hefur hjálpað verulega til. En þegar maður skoðar kannski t.d. bara upphæðirnar í þessu þá finnst mér — þetta eru kannski 3 milljarðar til áramóta sem þetta er að kosta, þessi pakki, þannig að við erum ekkert að tala um stórar tölur. Ég vil kannski hnykkja aðeins á þessu með að ekki eru uppi áform um það, af því að ég verð eiginlega bara orðlaus yfir því að það er eins og það sé bara reiknað með að það verði skrúfað fyrir gosið á tilteknum tíma og að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu lengur. En það eru bara fyrirtæki þarna sem eru bara að kafna. Þau hafa engin ráð, það er engin velta, þau mega ekki starfa og maður veltir því fyrir sér: Á bara að setja þessi fyrirtæki á hausinn?