154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:06]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað full ástæða til að velta því fyrir sér, enda kemur hvert neyðarkallið á fætur öðru til okkar þar sem þessu er bara mjög skýrt haldið fram, að verði ekki að gert, verði ekki gripið inn í, þá muni þessi fyrirtæki fara á hausinn, að eigið féð sé að brenna upp, að skuldirnar séu að sliga eigendur, að þau sjái ekki annan kost færan en að leggja niður rekstur. Viljum við að fólk sem hefur verið með blómlegan rekstur þurfi að leggja niður og geti í raun ekki hafið nýjan rekstur af því að það er svo skaddað eftir þennan, sem fór á hliðina af algerlega óviðráðanlegum ástæðum? Ég segi nei, við viljum það ekki.

Ég vek athygli á þessum tímamörkum eða þessu sólarlagsákvæði sem er laumað inn í greinargerð vegna þess að í fyrsta lagi hafa þessi úrræði alltaf verið kölluð, eða það hefur verið vísað til þeirra, það hefur verið minn skilningur að þetta hafi verið svona tímabundin úrræði, þetta hafi verið svona fyrstu viðbrögð ríkisstjórnarinnar gagnvart ástandinu og til standi eitthvert umfangsmeira framtíðarplan og mér finnst bara sex mánuðir — ég ætlaði að fara að blóta hérna, ég ætla að sleppa því — vera nægur tími til þess að vera komin með framtíðarplan og vera búin að kynna það gagnvart atvinnurekstrinum í Grindavík. Ég bara sé ekki hvaða forsendur eru fyrir því að segja að það þurfi að taka okkur lengur en hálft ár að ákveða hvort við ætlum að kaupa upp atvinnuhúsnæði í Grindavík eða hvernig við ætlum að taka á þessu og að við þurfum bara að halda áfram að sjá hvernig málin þróast. Ég meina, sumt liggur bara fyrir og það liggur fyrir að það munu fjölmörg fyrirtæki fara á hausinn, skuldir verða óviðráðanlegar o.s.frv. o.s.frv. ef ekki verður gripið inn í strax. (Forseti hringir.) En svarið felst kannski einna helst í aðgerðaleysinu. Svarið er til staðar: Það stendur ekki til að gera neitt.