breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við sitjum bæði í efnahags- og viðskiptanefnd og þar hafa þessi mál verið til umfjöllunar og á borði efnahags- og viðskiptanefndar, alla vega þau atriði sem snúa að einhverjum fjárhagslegum atriðum sem þarf að takast á við. Það var skipaður einhver stýrihópur sem átti að kynna einhver úrræði til framtíðar og samkvæmt greinargerðinni varð Deloitte fyrir valinu þegar verið var að velja einhverja ráðgjafa til að veita fólki einhverja tilsögn í því sem hægt væri að gera til framtíðar og í þessari greinargerð er verið að nefna tvennt sem á að koma til. Annað er að veita rekstraraðilum möguleika á því að taka stuðningslán með ríkisábyrgð. Síðan er hitt sem við ætlum að fara að ræða hér á eftir, um einhvern Afurðasjóð Grindavíkur sem á þá að veita fólki sem er með fyrirtæki í starfi í Grindavík möguleika. Ef birgðir skemmast t.d. þá er hægt að sækja í þennan Afurðasjóð og fá einhverjar bætur þar í gegn en þessar aðgerðir snúa bara að fyrirtækjum sem eru í einhvers konar rekstri. Stuðningslán með ríkisábyrgð handa fyrirtæki sem getur ekki starfað þýðir bara að ríkið ætlar sér að, ja, hvað, veita lán og fá það svo bara beint í hausinn aftur? Ég er ekki alveg búinn að ná utan um þetta en mér sýnist þarna að það sé ekkert verið að horfa á þau fyrirtæki sem hv. þingmaður nefndi hér, (Forseti hringir.) sem eru þessi smærri fyrirtæki sem hafa ekki undir neinum kringumstæðum (Forseti hringir.) síðan þessir atburðir hófust getað starfað.