154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:11]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þessi stuðningsúrræði hafa bara að mjög litlu leyti beinst að fyrirtækjum sem geta ekki starfað. Það er einna helst einhver launastuðningur gagnvart fyrirtækjum sem geta ekki verið með starfsemi en það leysir fólk ekki undan fasteignalánum út af atvinnuhúsnæði eða því að eiga verðlausa eign sem atvinnustarfsemi er rekin út frá, að fá engar tekjur í raun inn í módelið sitt, geta ekki haldið áfram rekstri sama hvað gerist í raun í framhaldinu, næstu árin a.m.k. Framtíðarsýnin gagnvart þessum fyrirtækjum er mjög takmörkuð og það að ætla að veita þeim lán ofan á mögulega önnur og dýrari lán er ekki að fara að hjálpa fólki út úr þessum vandræðum sem það er í. Eins og ég hef verið að benda á finnst mér ríkisstjórnin skila frekar auðu þegar kemur að atvinnustarfsemi í Grindavík og að styðja fólk, hvernig sem það á að gera það. Hvernig væri að vera bara með nýsköpunarstyrki a.m.k. til að hjálpa fólki að koma sér fyrir á nýjum stað, að sýna smá framsýni og hugmyndaauðgi í því að bakka fólk upp í að byggja sig upp á ný? Það væri vel hægt að halda flottan þjóðfund með Grindvíkingum og stjórnmálamönnum og finna fjölbreyttar leiðir sem henta hverjum og einum til að koma undir sig fótunum á ný. Það þyrfti ekki endilega að kaupa upp hvert einasta atvinnuhúsnæði í Grindavík ef þessi umræða og þessi vinna hefði farið strax í gang og hún væri með, hvað eigum við að segja, sem lýðræðislegustum og bestum og vönduðustum hætti. En nú eru liðnir sex mánuðir, í millitíðinni hefur mjög lítið gerst þegar kemur að þessum hópi þannig að ég skil vel óþolinmæðina, örvæntinguna og reiðina sem er ríkjandi núna í garð stjórnvalda.