breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir ræðuna. Ég verð bara að taka undir með henni um öll þessi neyðaróp sem hafa dunið og maður þarf ekki að vera hissa yfir því miðað við þær aðstæður sem fólk hefur búið í þarna undanfarin ár, 2–3 ár, að það sé orðin gífurleg neyð.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála mér, vegna þess að ég hef langmestar áhyggjur af þeim sem hafa ekki sent út neyðarástandsboð, sem maður hefur ekki heyrt í en maður veit af og heyrir utan frá sér að er fólk sem er í alveg rosalega slæmum málum. Þar er ég að tala um fólk sem var á elliheimili í Grindavík, aldraða einstaklinga sem geta í sjálfu sér ekki hugsað um sig sjálfir og eru settir á fjölskyldur sínar. Það segir sig sjálft að það verður margfalt álag á fólk þegar það þarf að búa langt frá sínu heimili og síðan líka að vera með börn í skóla langt frá því heimili þar sem þau búa og síðan vinnustaðinn á enn einum staðnum og síðan þarf að bera ábyrgð á foreldri sínu eða einhverjum öðrum einstaklingi, hvort hún sé ekki sammála mér um að þetta fólk hefur gleymst. Það er ekki verið að hjálpa því. Það er einhvern veginn horft fram hjá eða skautað fram hjá því að taka virkilega á, vegna þess að ég veit að fólki hafa meira að segja verið boðnir hreppaflutningar, að fólk geti farið á elliheimili einhvers staðar norður í landi eða bara einhvers staðar út úr öllum kortum þar sem það hefur enga ættingja til þess að hugsa um sig.