breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég get svarað því neitandi þar sem þetta er bara framlenging á gildandi úrræði, þ.e. það er mjög lítið verið að breyta nokkrum sköpuðum hlut þannig að þeir sem ekki féllu undir þessi úrræði eru ekki í neinum líkindum að falla undir þau að þessum lögum settum.
Mér finnst hv. þingmaður koma með mjög mikilvægan punkt inn í umræðuna sem er að muna eftir mennskunni í þessu öllu saman og það að þegar maður lendir í jafn stóru áfalli og Grindvíkingar hafa sannarlega lent í þá sé maður ekki endilega tilbúinn að verða kerfisfræðingur bara í leiðinni. Það þarf að vera kerfisfræðingur til að komast í gegnum öll þessi úrræði, til að fylla út réttu eyðublöðin, til að sækja um réttu hlutina o.s.frv. o.s.frv. og maður þarf að snúa sig út úr því hvert börnin manns eiga að fara í skóla eða hvaða elliheimili pabbi getur farið á o.s.frv. o.s.frv. þannig að það er rosaleg vinna sem fer í þetta í ofanálag við óvissuna og áfallið. Auðvitað má með vissu lagi segja að Grindvíkingar séu flóttamenn í eigin landi eða „internally displaced people“ og það má alveg gera þá kröfu á stjórnvöld að þau sýni dug og séu duglegri við að ná til fólks og halda utan um. Ég veit samt að það hefur mikið verið reynt og það er mikið af góðu fólki að vinna við að styðja við Grindvíkinga en betur má ef duga skal í þessu. Það höfum við heyrt af fundum okkar með Grindvíkingum. Það höfum við séð af þeim bréfum sem við höfum fengið send, að við þurfum að standa okkur betur og við þurfum að vera tilbúnari til að grípa til aðgerða og hlusta þegar okkur er bent á hvar skórinn kreppir og hvar þarf að laga hlutina.