154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:23]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við berum öll þá von í brjósti að Grindavík verði lífvænleg á ný. Fyrir þessa hræðilegu atburði var Grindavík eitt best stadda sveitarfélagið á Íslandi, a.m.k. hvað varðar fjárhagslega getu til að standa undir þeirri þjónustu sem sveitarfélaginu var ætlað að veita, með nánast engar vaxtaberandi skuldir. Einhverjar smáskuldir féllu til innan ársins eða eitthvað slíkt en sveitarfélagið var í eins góðum málum og nokkurt sveitarfélag getur verið. Allt sem hefur gerst síðan hefur auðvitað snúið hlutunum á hvolf og við erum núna að horfa upp á samfélag sem má segja að ekki sé hægt að búa í, þrátt fyrir að einhver fyrirtæki í jaðri sveitarfélagsins eða niður við sjó hafi getað verið með einhverja takmarkaða starfsemi. Viðfangsefnið er því mjög stórt og í raun og veru risavaxið á hvaða mælikvarða sem við stillum því upp.

Mér hefur allan tímann fundist í þessum aðgerðum öllum sem farið var í að verið væri að horfa til þess að enginn myndi lenda milli skips og bryggju. Á sínum tíma, þegar Vestmannaeyjagosið skall á Eyjamönnum, var talað um skaðleysi. Ég held að það sama gildi um Grindvíkinga eins og gilti um Vestmannaeyinga á sínum tíma, að reyna að gera það verkum að fólk verði ekki fyrir skaða, alla vega ekki fjárhagslegum skaða af þeim atburðum sem átt hafa sér stað. Ég fagna að sjálfsögðu þessum aðgerðum sem hér er verið að framlengja af því að þær eru auðvitað liður í því að styðja við og standa með fólki sem hefur verið á leigumarkaði, verið er að hjálpa fyrirtækjum að viðhalda rekstri en ekki síst er verið að hjálpa fyrirtækjum við að greiða laun sem átti að vera liður í því að viðhalda ráðningarsambandi fólks og fyrirtækja. Það hefur í ákveðnum tilfellum heppnast ágætlega en við vitum þó að mörg fyrirtæki hafa gefist upp og vísað þessu úrræði frá sér. Þá hefur fólk ekkert annað úrræði en að leita til Vinnumálastofnunar og kostnaður ríkisins færist þá bara frá þessu úrræði til Vinnumálastofnunar.

Ég er að sjálfsögðu mjög hlynntur því að þessar þríþættu aðgerðir sem þarna eru nefndar haldi áfram. Ég veit ekki hvort þessi texti í greinargerðinni um að ekki séu uppi áform um að framlengja þetta frekar umfram það sem þarna er gert ráð fyrir leggist neitt sérstaklega vel í mig því að ég er ekkert viss um að þessum atburðum verði lokið. Í það minnsta verður ekki búið, þótt atburðunum verði lokið, að byggja upp það sem þarf í Grindavík. Ég vil því minna á orð bæjarstjóra og ákvörðun bæjarstjórnar um að það verði ekki skólahald í Grindavík á hausti komanda. Það á því ekki að reka samfélagið á þann hátt sem eðlilegt er næsta haust. Búið er að semja um að íþróttafélögin fái að halda sinni aðstöðu sem þau hafa haft hingað til. Við erum því að sjá að fólk er að fara til annarra sveitarfélaga og svo er auðvitað stóra málið að fólk er að selja frá sér húsnæði sitt, flytjast í önnur sveitarfélög, kaupa sér þar húsnæði og selja sitt til Þórkötlu og er þar með að flytja lögheimili sitt. Þetta mun auðvitað hafa gríðarleg áhrif á möguleika og stöðu sveitarfélagsins, bæjarsjóðs. Síðan var tekin ákvörðun um að það yrði ekki greiddur fasteignaskattur og því má segja að möguleikar sveitarfélagsins til að afla tekna séu nánast farnir og lítið eftir. Það getur vel verið að hægt sé að réttlæta einhverja skuldsetningu vegna þess að sveitarfélagið stóð svo vel en sú skuldsetning getur ekki verið út í hið óendanlega. Fram undan eru miklar áskoranir og ég hefði gjarnan viljað sjá metnaðarfyllri aðgerðir á þessum tímapunkti.

Sagt var: Við ætlum að bjarga fólki, við björgum húsnæðinu og svo tökum við á jaðarmálunum seinna. En það er ekkert verið að því. Ég verð að minna á það að á sínum tíma þegar við vorum að samþykkja uppkaup á íbúðarhúsnæði voru ákveðnir aðilar bara skildir eftir. Nú er verið að tala um uppkaup á atvinnuhúsnæði en við vorum líka með íbúðarhúsnæði í eigu lögaðila eða einstaklinga sem hreinlega fengu það ekki bætt. Þeir fengu bara heimili sitt bætt. Eldra fólk sem átti kannski fyrir útborgun í annarri íbúð og ákvað í staðinn fyrir að setja þá peninga í hlutabréf eða inn á verðtryggðan reikning að nota þessa fjármuni til að kaupa íbúð og leigja hana, stundum kannski bara barnabörnunum sínum eða börnunum sínum til að aðstoða fjölskyldur við að hefja sinn búskap eða eitthvað; þessir aðilar fá þetta ekki bætt. Leigutekjurnar áttu síðan að duga fyrir afborgunum en svo eru engar leigutekjur. Hvernig á fólk þá að greiða afborganir? Svona hópar eru til. Það er líka til ungt fólk sem keypti kannski á versta tíma, í þenslu, minni íbúðir í Grindavík sem voru tiltölulega nýjar með fasteignamat sem var talsvert yfir brunabótamati. Það hafði safnað kannski einhverju upp í útborgun eða hreinlega lagt allan sinn séreignarsparnað í útborgun og af því að það keypti á verði þar sem fasteignamatið var hærra en brunabótamatið tapaði það því sem það lagði í íbúðina, jafnvel fóru sumir í mínus og aðrir fá einhverja smáaura til ráðstöfunar. Svo má ekki gleyma erfiðleikum þessa hóps þegar hann kemur inn á annan markað sem er dýrari en húsnæðismarkaðurinn í Grindavík, það er erfiðara um vik að komast inn á þann markað og hreinlega að standast greiðslumat þegar eigið fé er uppurið vegna kaupa í Grindavík sem skiluðu ekki því sem fólk þurfti að hafa með sér í veganesti til að kaupa. Þessir hópar eru bara dæmdir á leigumarkað sem er líka ónýtur. Það eru þessir hópar sem ég er hræddur um að séu bara að lenda illa í því.

Síðan eru, eins og hefur verið nefnt í ræðum hér á undan, þessar aðgerðir sem nefndar eru í greinargerðinni um að gefa rekstraraðilum kost á stuðningslánum og um einhvern afurðasjóð ekki að nýtast þeim aðilum sem eru búnir að vera að ræða við okkur svo vikum og mánuðum skiptir, senda okkur bréf með ákalli um breytingar og lagfæringar af því að fólk ræður ekki orðið við ástandið. Þessar aðgerðir hér eru ekki að hjálpa þessum hópum. Þeir hafa verið að biðja um uppkaup á húsnæði til að geta hafið starfsemi annars staðar eða hærri rekstrarstyrki eða flutningsstyrk til að geta farið með starfsemina. Þeir hafa kannski verið í leiguhúsnæði en þurft að færa starfsemina til. Þetta eru aðgerðir sem ég er ekkert að sjá að séu að gerast. Við hljótum að velta því fyrir okkur að það er búið að banna þessa starfsemi í Grindavík og hvernig getur fólk verið með þjónustustarfsemi á stað þar sem engir íbúar eru? Það er ekki hægt að vera með þjónustustarfsemi. Það er ekki hægt að vera með hárgreiðslustofu í Grindavík, hver ætlar að láta klippa sig þar? Eða bakarí — sá sem rekur bakaríið er búinn að reyna ítrekað að setja bakaríið í gang aftur. Hann er bara búinn að gefast upp. Hann langar aftur heim, vissulega langar hann aftur heim. Það langar alla alltaf heim en hann bara getur það ekki. Það er enginn möguleiki á því að vera með rekstur. Það vantar hvað við ætlum að gera við þessa hópa, hvað við ætlum að gera við litlu hárgreiðslustofurnar, við þá sem voru að þjónusta stærri fyrirtæki, alls konar iðnfyrirtæki. Hvað ætlum við að gera við litlu veitingahúsin?

Við erum ekki búin að ná utan um þetta enn þá og erum í þeirri stöðu að fullt af fyrirtækjum er í húsnæði sem er tiltölulega heilt en af því að það eru sprungur þá má ekki vera starfsemi þar. Það er bara bannað að vera með starfsemi. Ef búið er að banna þér að vera með starfsemi verður þá ekki að bæta þér það á einhvern hátt að þú getir ekki verið með rekstur? Við heyrðum í fréttum í síðustu viku um sprotafyrirtæki sem hafa verið í þróunarstarfi, hafa ekki verið að skila tekjum af því að núna er þetta bara kostnaður hjá þeim af nýsköpun og þróun. Þau eru ekki að fá neitt af því að það hefur ekkert tekjufall orðið enn þá. Svo eru önnur fyrirtæki, lítil fyrirtæki sem áttu lager og hafa verið að selja úr lagernum sínum. Og hvað þá? Af því að þau höfðu tekjur þá fá þau ekki neitt, en þau eru að nota gamla birgðir og þurfa svo að fara að framleiða og búa til nýjan lager. Þá hugsanlega fá þau einhverja styrki en þeir munu ekki duga til að koma upp nýjum lager. Þetta er því ekki að ná utan um allan hópinn, því er nú verr og miður.

Eins góðir og margir hlutir hafa verið að undanförnu, t.d. að stofna Þórkötlu, tókum við ekki með alla þá sem hefðu þurft að fara þangað inn. Og stuðningsstyrkirnir náðu ekki utan um allar gerðir fyrirtækja. Með því að halda svo áfram að búa til aðgerðir fyrir fyrirtæki sem eru jú eitthvað að starfa þarna þá erum við ekki að ná utan um fyrirtækin sem ekki geta starfað þar. Þau eru mýmörg og við teljum þau í einhverjum tugum. Þá spyr maður um þessa einstaklinga sem lögðu allt sitt í að láta þessa hluti ganga, eru búnir að eyða áratugum í að byggja upp í Grindavík, búnir að fjárfesta í húsnæði sem aðrir hafa getað notað, fjárfesta allar sínar eigur þarna. Þetta eru lögaðilar og af því að svo er þá fá þeir ekki að sitja við sama borð og aðrir.

Mér finnst þetta súrt og á erfitt með að sætta mig við að þetta sé svona, vegna þess að okkur ber við svona aðstæður að taka utan um alla þá sem verða fyrir skaða. Ég held líka að í framhaldinu sé nauðsynlegt að við skoðum náttúruhamfaratryggingarnar á einhvern hátt því að þær eru ekki að bæta allt það tjón sem fólk er að verða fyrir, eins og ég var að nefna með fyrirtæki sem standa á sprungusvæði — húsið er heilt, hvað á að bæta ef húsið er í lagi? — eða íbúðarhúsnæði sem skemmist en bílskúrinn er heill. Það eru alls konar svona hlutir sem við verðum að takast á við og við megum ekki láta staðar numið núna. Við þurfum að spýta í lófana og gera þessa hluti hraðar. Það er ekki hægt, virðulegur forseti, að skilja samfélagið eftir. Það er í sárum og fólk er í sárum bæði andlega, félagslega og fjárhagslega og við verðum að halda utan um þennan hóp.