154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:38]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni yfirferðina. Ég bað um andsvar áður en hann fór yfir þær góðu breytingartillögur sem hann lagði sjálfur fram þegar við vorum að ræða uppkaup á húsnæði í Grindavík. Það er svo gott dæmi um hvað hlustunarskilyrðin eru misgóð í þessum sal vegna þess að þær breytingartillögur hafa elst mjög vel og hefði verið betra ef þær hefðu verið studdar ekki bara af atkvæðum okkar í minni hlutanum heldur af öllum þingheimi; það að kaupa íbúðarhúsnæði sem er í eigu lögaðila, að rýmka lögheimilisskilyrðin eins og hv. þingmaður lagði til þannig að það væri í alvöru tekið utan um öll þau sem hafa lent í skakkaföllum vegna ástandsins í Grindavík. En hér erum við enn á ný að ræða sama hlut. Mér finnst þetta bara svo undarlegt vegna þess að síðan heyrum við stjórnarliða mæta hér í pontu og segja: Auðvitað gerum við allt sem þarf. Auðvitað verður allt það gert sem þarf fyrir Grindavík og auðvitað munum við standa vaktina með Grindavík. Þetta heyrðum við hæstv. ráðherra segja í andsvörum við framsöguræðu hennar. Er það raunin, hv. þingmaður? Er það raunin að ríkisstjórnin sé að gera allt sem þarf og allt það sem hægt er þegar við stöndum enn þá frammi fyrir því að stór hópur Grindvíkinga er viðstöðulaust að banka upp á hjá stjórnvöldum án þess að fá áheyrn og beinir þar með í framhaldinu kröftum sínum í að banka upp á hjá þingheimi þar sem hann fær áheyrn hjá hluta hans, því miður ekki þeim hluta sem ræður meiri hluta hér innan borðs? (Forseti hringir.) Erum við í alvöru að gera allt sem hægt er og nauðsynlegt er?