breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið er nei, við erum ekki að gera allt sem við gætum gert. Okkur hefði verið í lófa lagið að hafa skilyrðin í Þórkötlu þannig að allir sem ættu íbúðarhúsnæði í Grindavík fengju það bætt. Við hefðum líka getað haft félagslega húsnæðiskerfið inni í þessu, eins og Búmenn sem sitja núna uppi með fullt af húsnæði í Grindavík. Þau sem voru búin að borga innborgunina fengu það út en Búmenn geta ekkert hreyft sig af því að þeir sitja uppi með tugmilljónir í Grindavík.
Það vakti athygli mína þegar við vorum að vinna með Þórkötlu á sínum tíma að allt í einu voru dánarbú komin þarna inn. Ég skildi það ekki. Er dánarbú eitthvert heimili? Ég skildi aldrei hvernig stóð á því að einhvern tíma um nótt var búið að bæta við dánarbúum, en dánarbú er í sjálfu sér lögaðili. Hvers vegna fengu dánarbú áheyrn hjá ríkisstjórninni en ekki, eins og ég var að nefna hér, eldra fólk sem var hugsanlega búið að fjárfesta í annarri eign, átti fyrir útborgun og ætlaði svo nota húsaleiguna til að borga niður afborganir? Það fólk var skilið eftir. Ég veit um fólk sem keypti sér í öðru sveitarfélagi á Suðurnesjum og átti húsnæði í Grindavík sem það bjó ekki í heldur náinn fjölskyldumeðlimur. Nú eru þau í þeirri stöðu að neyðast til að flytja úr þessu sveitarfélagi og þurfa helst að fara upp í Grindavík og búa þar af því að þau ráða ekki við þetta. Þau eru með afborganir af húsnæðinu í Grindavík sem þau bjuggu ekki í, voru ekki með lögheimili þar, og ráða ekki við afborganir á öðrum stað. (Forseti hringir.) Þannig að nei, við erum ekki búin að gera nóg.