154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:42]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að spyrja aðeins varðandi atvinnuhúsnæði og stöðu smærri og meðalstórra fyrirtækja í Grindavík. Það er kannski ósanngjarnt að taka eitt þeirra út fyrir sviga en mér fannst svo skemmtilegt dæmi sem hv. þingmaður nefndi af bakaríinu í Grindavík, vegna þess að Hérastubbur bakari hefur náð langt út fyrir sveitarfélagið með sinni vöruþróun. Ég veit að það var grátur og gnístran tanna í vegan samfélaginu þegar þurfti að loka því bakaríi af því að eiginlega enginn annar bakari hefur náð að gera djúsí vegan sætmeti með sama hætti og Hérastubbur. Hér á höfuðborgarsvæðinu voru vörurnar seldar í massavís. Þetta er svo gott dæmi um fyrirtæki sem þyrfti að fá aðstöðu til þess að halda lífi og starfsemi annars staðar þangað til hægt er að flytja heim. — Þá kem ég ekki spurningunni að af því að tíminn er búinn. (Forseti hringir.) Hér þætti mér gott að heyra hvernig þingmaðurinn sér fyrir sér að hægt væri að ná utan um (Forseti hringir.) þessi fyrirtæki öðruvísi en er gert í frumvarpinu þannig að þau geti átt sér gott líf eftir hamfarirnar.

(Forseti (ÁsF): Þingmaður verður að nota sama tíma og aðrir í þessum sal.)