154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:44]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, Hérastubbur bakari er eitt þessara dæma. Ég get nefnt t.d. að verslunin Palóma flutti mjög fljótt eftir að þessir atburðir gerðust til Reykjanesbæjar og gat hafið rekstur. Halla, Hjá Höllu, fór út í Sandgerði af því að hún var með rekstur uppi í flugstöð. Þarna eru mjög flott fyrirtæki og þau eru mýmörg í Grindavík sem gætu hafið starfsemi annars staðar hefðu þau bara fengið styrk til að gera það. Við erum bara ekki að sinna því. Þau eru bara látin dúsa í Grindavík og komast ekki neitt, sitja uppi með afborganir af húsnæði og lítinn rekstur. Þótt þau fái einhvern rekstrarstyrk er ekkert verið að bæta fólki afborganir af lánum. Mikið af þessu húsnæði er veðsett, með greiðslubyrði af lánum, og þau ráða ekkert við það að koma sér upp rekstri annars staðar og greiða síðan afborganir af lánum. (Forseti hringir.) Þessi fyrirtæki ráða ekki við það en fjöldi fyrirtækja, eins og Hérastubbur bakari, Hjá Höllu eða Palóma, gæti verið annars staðar.