154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:45]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er sagt á góðum stundum að samhjálp og samstaða sé einkenni á góðum samfélögum. Það stendur upp úr öðrum hverjum manni í þessum þingsal, eins og fram kom hjá hv. þingmanni, að við ætlum að gera allt sem hægt er, að enginn Grindvíkingur verði skilinn eftir, að skilningur sé á þeirra stöðu, fjárhagslegur og félagslegur og allt það. Svo lenda þessir hópar einhvern veginn út undan sem hv. þingmaður var að lýsa hér áðan. Við höfum líka talað um það í þessum sal að við þurfum að læra af öðrum áföllum, horfa til þess sem gerðist í Vestmannaeyjagosinu, í Covid og skriðuföllunum fyrir austan, en við höfum ekki gert það. Í Vestmannaeyjagosinu í janúar 1973 var t.d. búið að reisa Eyjabyggð í Keflavík í júní og byrjað að tyrfa í kringum húsin. Þar létu menn hendur standa fram úr ermum. Auðvitað lentu Vestmannaeyingar illa í því og áttu erfitt, bæði andlega og fjárhagslega, en þetta var alla vega gert. Ég spyr hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér í því að ef við hefðum stigið strax inn í þetta ástand og búið til hverfi og svæði þar sem Grindvíkingar hefðu haft forgang að íbúðarhúsnæði, hvort við værum ekki í annarri stöðu núna ef við hefðum lært af því sem við gerðum eftir Vestmannaeyjagosið, þróað það áfram, auðvitað í ekki alveg nákvæmlega eins ástandi en hvort við stæðum ekki betur að vígi núna.