154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:48]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við vorum mörg hér í þessum sal sem hvöttum til þess að gripið yrði til aðgerða á framboðshliðinni af því að það var vitað mál að Grindvíkingar þyrftu að flytja. Þeir voru neyddir til að flytja og það þurfti að koma fólki fyrir á öðrum stöðum. Hver er afleiðingin? Það er verulegur húsnæðisskortur, verð á húsnæði hefur hækkað verulega og erfitt er að fá leiguhúsnæði af því að það hefur ekki verið gert nægilega mikið á framboðshliðinni. Við vitum jú að Bríet, sem er í eigu stéttarfélaganna, fór í verulegar aðgerðir og Bjarg tók líka þátt í þeim. En það hefur ekki dugað. Við vitum af gömlu fólki, t.d. í heimabyggð hv. þingmanns, Garðinum, sem þurfti að búa í einhverjum litlum herbergjum sem átti að vera löngu búið að leggja af vegna þess að þau hafa ekki staðist tímans tönn. Við vitum um eldri konu í iðnaðarhúsnæði. Það var haft samband við mig fyrir ekki löngu síðan þar sem aðilar sem höfðu aðgang að 50 einingahúsum gátu flutt þau inn strax. Ég kom þessum skilaboðum á framfæri víðs vegar en það hefur ekkert gerst. Einhverra hluta vegna finnst mér eins og ríkisstjórnin líti þannig á að markaðurinn verði bara að stjórna þessu en markaðurinn getur ekki alltaf stjórnað öllu, það er bara þannig. Stundum þarf að fara í einhver félagsleg úrræði þegar markaðurinn klikkar, vegna þess að markaðurinn er bara að horfa á ágóða hverju sinni en það er ekkert endilega víst að það sé einhver fjárhagslegur ágóði í því fara að flytja inn hús og koma fólki fyrir, (Forseti hringir.) alla vega ekki skyndigróði eins og við sjáum að markaðurinn sækist alltaf eftir þegar farið er af stað í einhver ævintýri sem eiga að skila verulegum hagnaði til framtíðar.

(Forseti (ÁsF): Ég minni ræðumanninn á tímann.)