154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[18:50]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef einmitt fengið nákvæmlega þessi sömu svör og hv. þingmaður frá ráðherrum, að þessar hugmyndir allar séu á félagslegum grunni og það sé markaðurinn sem þurfi að græja húsnæðismálin. Það blasir við að ef við ætlum að taka sem samfélag á slíkum hamförum eins og gengið hafa yfir í Grindavík og taka á stöðu Grindvíkinga þá gerum við það ekki á forsendum markaðarins, þá gerum við það á félagslegum forsendum af því að við viljum vera gott samfélag. Okkur var lofað því, eins og hv. þingmaður kom að í sinni ræðu, að jaðartilfellin, öll þau tilfelli sem féllu ekki undir Þórkötlu, yrðu tekin sérstaklega til athugunar. Okkur var líka lofað að það ætti að hjálpa fyrirtækjum sem gætu starfað í Grindavík, fyrirtækjum sem ekki gætu starfað í Grindavík og fyrirtækjum sem gætu komið undir sig fótunum annars staðar. (Forseti hringir.) Það bólar ekkert á þessum lausnum. Þær lausnir sem er verið að boða hér, hvort sem það er þetta frumvarp eða frumvarpið sem við ræðum hér á eftir um afurðasjóð, (Forseti hringir.) ná ekki yfir þetta. Við verðum að krefjast þess að gert verði betur (Forseti hringir.) ef við ætlum að standa undir nafni sem almennilegt samfélag.

(Forseti (ÁsF): Forseti krefst þess að farið sé eftir ræðutímanum.)