breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Mig langar hér við 1. umræðu þessa máls, sem er nú svona einfalt framlengingarmál gagnvart þremur þegar samþykktum frumvörpum sem urðu að lögum hér fyrir nokkrum mánuðum síðan — svona til upprifjunar, þótt það hafi nú komið fram hér áður, er þetta í fyrsta lagi framlenging á frumvarpi sem framlengir gildistíma tímabundins rekstrarstuðnings vegna náttúruhamfaranna í Grindavíkurbæ, sem sagt til fyrirtækja, í öðru lagi sérstakur húsnæðisstuðningur á grundvelli laga þar um og í þriðja lagi tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfaranna í Grindavíkurbæ.
Ég kom inn á það í andsvari við hæstv. ráðherra og að einhverju marki í fyrirspurn fyrr í dag til forsætisráðherra að mér þykir nokkuð sérstakt að það sé ekki verið á þessum tímapunkti að reyna að ná með heildstæðari hætti utan um þann vanda sem þarna er við að glíma, sem er að mörgu leyti miklu fjölbreyttari og að mörgu leyti flóknari heldur en vandinn sem fyrirtæki áttu við að glíma í gegnum heimsfaraldur. En staðan er sú að allar þær lausnir sem boðið hefur verið upp á hingað til eru sóttar í verkfærakistuna sem var búin til meðan Covid-faraldurinn gekk yfir. Við heyrðum af því fréttir bara í síðustu viku að fulltrúar smærri og millistórra fyrirtækja í Keflavík hefðu gengið á fund forsætisráðherra og bent á og leitt fram hversu illa að mörgu leyti lausnirnar gögnuðust mismunandi fyrirtækjum og það að hér sé einvörðungu verið að horfa til framlengingar á þegar samþykktu regluverki veldur mér nokkrum vonbrigðum. Ef það verður reynt að bæta úr í nefndinni munu eflaust koma upp sjónarmið er varða það að mál fái fullnægjandi þrjár umræður hér í þinginu en ég held að það hefði verið til bóta hefði ríkisstjórnin reynt að opna fyrir lausnir sem blasir við að verður á einhverjum tímapunkti nauðsynlegt að forma bara í ljósi þess hvernig raunheimar mæta íbúum og fyrirtækjum í Grindavík nú um stundir.
Ef ég reyni að fara í gegnum þetta atriði fyrir atriði á þetta bæði við um það sem snýr að fyrirtækjum og síðan auðvitað bara einstaklingum sem féllu milli skips og bryggju þegar kom að því að forma reglur um stuðning vegna uppkaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Eins og staðan er núna þá eru þetta milli 200 og 300 íbúðir sem eru utan lausna, ef svo má segja, og staða þeirra aðila er auðvitað alveg rosaleg; að vera í sveitarfélagi með eign sína bundna í íbúðarhúsnæði þar sem ríkissjóður hefur þegar keypt mikinn meiri hluta eigna á svæðinu. Þá blasir auðvitað við að það er enginn markaður til að eiga við. Þeir einstaklingar og þau fyrirtæki sem finna sig þarna í þessari lægstu stöðu eiga enga leið út. Við þekkjum auðvitað öll dæmi þess þar sem til að mynda foreldrar hafa verið að styðja við börn sín að eignast íbúð og á meðan er enginn skráður eigandi þar, íbúð til að mynda í leigu. Það er auðvitað þyngra en tárum taki að einstaklingar og fjölskyldur læsist inni með þessum hætti í ljósi þess að línan var dregin hvað lausnina varðar innan við þau mörk sem viðkomandi féllu undir. Það eru óteljandi svona dæmi sem við þekkjum.
Annað sem held ég að verði að nefna í þessu samhengi eru bara þessar almennu leiguíbúðir og þá skiptir ekki öllu máli hvort það er einstaklingur sem er að leigja eina íbúð eða lögaðili sem leigir fleiri. Það skapast reglulega umræður um leigufélög og þeim mörgum hverjum fundið allt til foráttu en það verður aðeins að bera blak af slíkum aðilum þegar sá raunveruleiki blasir við að ríkið sé í rauninni búið að fjarlægja íbúa, leigutaka, úr heilu sveitarfélagi að miklu leyti og markaðurinn fallinn en fyrirtækjunum sagt að finna út úr þessu sjálf, þannig að ég bara bið okkur hér inni að hafa það aðeins í huga að lögaðilarnir eru að mörgu leyti að fá rétt stutta stráið í þessari sviðsmynd sem hefur teiknast upp fyrir okkur.
Það eru atriði sem snúa að væntingastjórnun sem hafa kannski ekki alltaf verið sterkasta svið þessarar ríkisstjórnar. En kannski á það alveg sérstaklega við núna að hvetja ríkisstjórnina til að passa vel upp á það að væntingastjórnunin sé eins bærileg og nokkur kostur er. Sjáum bara atriði eins og umræðu um stimpilgjald þar sem stór hluti íbúa í Grindavík taldi sig hafa fengið vilyrði fyrir því að stimpilgjald yrði fellt niður af íbúðarhúsnæði sem fólk og fjölskyldur væru nauðbeygðar til að fjárfesta í vegna þessarar stöðu sem upp var komin. Það voru fæstir íbúar í Grindavík í fjárfestingarhugleiðingum í nágrannasveitarfélögum þegar þessi staða skapaðist en nú þekkjum við að það eru fleiri hundruð íbúðir sem Grindvíkingar hafa keypt og ætli það sé ekki að verða upp undir hálfur milljarður sem íbúar í sveitarfélaginu hafa borgað í stimpilgjöld af viðskiptum sem þau hvorki vildu né ætluðu að standa í. Eina niðurfelling stimpilgjalds sem á endanum kom til var niðurfelling hjá félaginu Þórkötlu sem hefði þó verið færsla á milli vasa hjá hinu opinbera. Svona atriði eru atriði sem er mikilvægt að stjórnvöld tali skýrt um og ég verð nú að viðurkenna að ætli það hafi ekki verið hvað skýrustu svörin sem ég hef alla vega heyrt frá hæstv. forsætisráðherra hér fyrr í dag við fyrirspurn minni í fyrirspurnatíma þar sem niðurstaðan varð auðvitað sú að það væri við litlu að búast fyrr en þá í haust, ef einhverju, umfram það sem er mælt fyrir hér í dag. Við þekkjum þetta, það getur verið erfitt á fundum, sérstaklega þegar tilfinningar eru heitar, að svara spurningum sem geta verið flóknar og erfiðar þannig að fólk fari ekki með óraunhæfar væntingar frá slíkum fundi. En það er engu að síður það besta sem stjórnvöld geta gert í þeirri stöðu sem uppi er núna, að svara skýrt strax, því nei er svar sem hægt er að vinna með. Þá fara menn að leita annarra lausna og þar fram eftir götunum. En að fá kannski og jú, okkur líst vel á þetta og reynum að koma þessu í gegn, þegar enginn ætlun er til þess, kann ekki góðri lukku að stýra.
Það eru ákvarðanir sem stjórnvöld hafa tekið, og sjálfur hef ég greitt atkvæði með þeim og stutt við þær, sem hafa áhrif á fyrirtæki og heimili sem þarna annaðhvort starfa eða standa og húsnæði sem rekstraraðilum eða fjölskyldum tengist. Ákvörðun eins og að verja sveitarfélagið með varnargörðum hefur auðvitað áhrif. Það er þannig að íbúar hafa bara lýst því að að mörgu leyti væri einfaldari staða að finna sig í ef húsið væri farið heldur en ef það væri stæði óhaggað innan varnargarða. Þeir sem finna sig í þessari 200–300 íbúða púllíu sem fellur utan lausna íbúðarhúsnæðis finna sig í þeirri stöðu.
Það eru þessar ákvarðanir eins og varnargarðarnir, það eru ákvarðanir eins og uppkaup á öllu þessu húsnæði sem kippa til að mynda fótunum undan ákveðinni gerð reksturs. Það er þetta heildarsamhengi sem mér hefur þótt vanta hjá ríkisstjórninni. Það var farið í verkfærakistuna sem var til eftir Covid og þetta er svona dálítið eins og barn sem er að reyna að setja þríhyrninginn í hringlaga gatið. Það er verið að þvinga lausnir sem passa ekki á vandamálið sem blasir við. Þá auðvitað finnum við okkur í þeirri stöðu að það falla fleiri milli skips og bryggju heldur en nokkurn tímann þyrfti að vera því að þetta eru ekki alltaf bara spurningar og óskir um aukin útgjöld. Þetta eru óskir um að lausnir séu sniðnar að fjölbreyttari og flóknari vanda að mörgu leyti heldur en við blasti í heimsfaraldrinum. Það held ég að sé fyrst og fremst ósk þeirra aðila sem til að mynda gengu á fund forsætisráðherra í síðustu viku.
Síðan er það auðvitað þannig að það hefur verið þyngra en tárum taki að fylgjast með hversu í raun alla vega hluti ríkisstjórnarinnar var seinn til, sjáum það nú bara í tengslum við umræðu um til að mynda einingahús, innflutt timbureiningahús. Hefðu menn borið gæfu til að taka ákvörðun hratt þá væri löngu flutt inn í slík hús, fyrstu púllíurnar sem til landsins hefðu komið af slíkum lausnum. Síðan hefði það bara haldið áfram að spýtast út jafnt og þétt mánuð fyrir mánuð. En staðan er sú að við erum enn þá með ótrúlegan fjölda Grindvíkinga í mjög alvarlegum húsnæðisvanda og það er ekkert sem bendir til þess að það sé að lagast alveg í bráð, bara ef við horfum á stöðuna á fasteignamarkaði þar sem framboðshliðin er því miður í miklum ólestri og eftirspurn miklu meiri en framboð og ekkert fyrirséð um að framboðið sé að taka við sér í neinni fyrirsjáanlegri framtíð.
Ég vil, bara svona til að ramma þetta inn, fagna því auðvitað að þessi þrjú mál séu framlengd en gagnrýni á sama tíma að það sé ekki gengið fram með þeim hætti að það séu formaðar fjölbreyttari lausnir við flóknari og fjölbreyttari vanda heldur en við höfum séð lengi. Ég fullyrði að allar þær óskir sem fram koma snúa ekki að hreinum viðbótarútgjöldum. Þær snúa að betri klæðskerasniðnari lausnum sem væri allra hluta vegna gott að finna lausn á og útfæra, bæði upp á verðmætasköpun fyrirtækja, upp á það að gera að fólk eigi möguleika á að búa í sínu frábæra sveitarfélagi þegar aðstæður skapast og eru til staðar og ég held að það myndi sömuleiðis draga úr þrýstingi á fasteignamarkaðinn og það myndi kannski fyrst og fremst aðstoða við það að fjölskyldur hefðu tryggt þak yfir höfuðið og rekstraraðilar sæju fram á hvar þeir gætu stundað sína verðmætasköpun til framtíðar út frá því hver þjónustan væri. Við sjáum að það eru óvíða á landinu betri aðstæður til sjósóknar heldur en einmitt frá Grindavík og það er auðvitað þannig að ef nokkur kostur er á þá verða þau fyrirtæki fyrst til að setja fullan kraft í sína starfsemi þar sem hún er fyrir og húsnæði býður upp á.
Þau skilaboð sem ég vil skilja eftir hér við 1. umræðu eru þau að ríkisstjórnin slái í klárinn hvað það varðar að útfæra lausnir gagnvart þeim sem hafa fallið milli skips og bryggju í þessum lausnum úr Covid-verkfærakassanum sem boðið er upp á og ég held að það sé í raun ekki boðlegt að ætla að segja að slík mál komi fram á haustþingi. Þá eru þau að klárast einhvern tímann undir áramót. Það held ég að sé hér um bil óbærileg staða fyrir rekstraraðila að standa í, að finna sig í þeirri stöðu að vera í limbói í heilt ár og vera þá með, eins og þessi mál eru römmuð inn hér, núllpunkt hvað varðar frekari fyrirgreiðslu því að þessar lausnir renna allar sitt skeið um áramótin 2024/2025. En það er nægur tími ef menn ætla sér að finna lausnir. En það þarf þá að senda rekstraraðilum skilaboð sem ætlunin er að standa við hvað það varðar með hvaða hætti verði stutt við aðila og fyrirtæki til að sinna sinni verðmætasköpun til langrar framtíðar, hvort heldur sem er í Grindavík eða annars staðar eftir atvikum. Það þarf fjölbreyttari lausnir heldur en boðið verður upp á og ég vona að nefndin í öllu falli sem tekur við málinu núna taki sér stuttan tíma, það er ekki mikill tími til ráðstöfunar en tíma til að ræða a.m.k. hvað þarf að taka við áður en þessar framlengdu lausnir renna sitt skeið á enda því það held ég að blasi við að sé algjörlega nauðsynlegt að fá upp á borðið þannig að rekstraraðilar hafi einhvern fyrirsjáanleika hvað sitt umhverfi varðar.