154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[19:17]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sína yfirferð. Það er einmitt þetta með að læra af sögunni, ekki bara hvað er best að gera heldur líka hvað er best að gera ekki. Eins og hv. þingmaður fór yfir er í kringum Grindavík búið að reisa, hvað eigum við að segja, ýmis þau varnarverkfæri sem voru nýtt í Covid en eiga mögulega ekki öll við. Þetta er kannski sérstaklega áberandi þegar við horfum á atvinnurekstur á svæðinu, sérstaklega þegar kemur að smærri fyrirtækjum. Í Covid var það þannig að ef þú rakst bakarí eða hárgreiðslustofu eða hvað það er þar sem samkomutakmarkanir komu í veg fyrir að rekstur væri í slíkum fyrirtækjum þá náði það yfir allt landið. Það var hvergi hægt að klippa hár á Íslandi. Þess vegna var alveg eðlilegt í því samhengi að bjóða upp á einhverja styrki til fyrirtækja til að geta viðhaldið ráðningarsambandi við fólkið sem hjá þeim starfaði og til að það fólk hefði líka í sig og á. En þegar starfsemi getur ekki átt sér stað í Grindavík núna vegna náttúruhamfara þá er kannski ekkert svo flókið að færa hana eitthvert annað. Það er hægt að klippa hár í Sandgerði, baka brauð í Njarðvík eða hvað það er en til þess þurfa þessi litlu fyrirtæki, sem hafa kannski ekki öll fjárhagslegt bolmagn til að stofna nýja starfsstöð án þess að losa fjármuni úr þeirri eldri, einhvern stuðning. Þess vegna velti ég fyrir mér: Hvernig stendur eiginlega á því að ekkert er horft til þessara aðila? Nóg hafa þeir látið í sér heyra. Maður hefði haldið að stjórnvöld sem á tyllidögum og bara alla daga guma sig af því að (Forseti hringir.) þau muni standa vaktina með Grindavík og gera það sem þarf hlusti betur en svo að skella skollaeyrum við þessum sjónarmiðum.