breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið. Það hefur sannast sagna komið mér á óvart hversu litla áheyrn rekstraraðilar, sérstaklega smærri og millistórra fyrirtækja, fengu að því er virðist framan af. Ég held að þetta neyðaróp, sem ég leyfi mér að kalla svo, sem endaði á fundi fulltrúa þessara aðila með forsætisráðherra í síðustu viku, dragi ágætlega fram hagsmuni þeirra. Býsna stór hluti þeirra fyrirtækja sem þarna starfa eða störfuðu hafði sagt að lausnirnar væru ekki að passa fyrir það vandamál sem blasir við. Ég ætla ekki segja að það hafi verið skellt skollaeyrum við þeim sjónarmiðum, það er ekki sanngjarnt, en einhvern veginn komst þetta ekki að á verkefnalista þeirra sem höndluðu með málið. Það er grafalvarlegt fyrir fyrirtæki eins og þau sem þarna um ræðir, sem eru kannski ekki öll með digra sjóði til að fleyta sér á milli mánaða, að sagt sé að fyrst þurfi að klára ákveðin mál til þess að koma festu undir stóra massann og svo verði farið í mál eins og þeirra, jaðarmál, en svo sé það ekki gert. Það kom ágætlega fram í svari hæstv. forsætisráðherra fyrr í dag að það stefnir ekkert í að það verði gert fyrr en í haust. Hæstv. ráðherra sagði það skýrum orðum. Ég held því að það hafi ekki verið til bóta fyrir rekstraraðila í Grindavík að fá þessi fyrstu skilaboð, að fyrst þyrfti að ná utan um stærstu vandamálin og svo yrði farið í mál sem snerta þá, og svo sé það ekki gert. Það er vond væntingastjórnun.