breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Mig langar aðeins að staldra við eitt sem hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu, að breytingar á þessu stuðningskerfi þurfi ekkert endilega að kalla á aukin útgjöld. Það er mjög kostnaðarsamt að dekka laun eða hluta launa í langan tíma. Ef hægt væri að nota svipaða upphæð til að hjálpa fyrirtækjum að koma undir sig fótum annars staðar þá gætu þau bara farið að borga laun með tekjum og hagnaði. Þannig yrði rekstur sjálfbær og þá virkar fyrirtækið eins og fyrirtæki á að virka frekar en að ríkið þurfi að koma inn með eitthvað sem fólk upplifir kannski sem ölmusu þegar frá líður.
Stundum finnst manni þessi verkfæri ekki vera sniðin að því sem fólkið í Grindavík þarf helst heldur að þörfum hins opinbera. Það endurspeglast kannski einna helst í tímarammanum sem er settur hér. Hér er verið að leggja til að framlengja úrræði til áramótanna. (Forseti hringir.) Er ekki raunin sú að almanaksárið hefur kannski meiri merkingu fyrir þá sem starfa við fjárlög heldur en fyrir allan almenning? (Forseti hringir.) Fjölskyldur í Grindavík myndu kannski frekar vilja sjá öryggi fram yfir skólaárið (Forseti hringir.) eða eitthvað sem hefur merkingu í lífi fólks af holdi og blóði.
(Forseti (LínS): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)