154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[19:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Þegar ég hitti Grindvíkingana þarna í kaffistofunni í Firði í byrjun maí, 5. eða 6. maí eða eitthvað svoleiðis, fór ég einmitt að spyrjast fyrir um afdrif þessa því að þetta hafði verið rætt á íbúafundi skömmu áður þar sem býsna margir Grindvíkingar virtust hafa — þess vegna talaði ég um mikilvægi þess að tala skýrt í ræðu minni áðan — skilið það þannig að ætlunin væri og allt að því vilyrði fyrir því að horfa til þess að þeir sem væru þarna þvingaðir til viðskipta með fasteignir væru ekki samanlagt að skila ríkissjóði hálfum milljarði á grundvelli stimpilgjalda af viðskiptum sem þeir vildu ekki eiga, sem er raunverulega staðan sem þarna teiknast upp. Ég sagði nú þarna í kaffihorninu að minn skilningur hefði verið einmitt sá að horft væri til þessa. Síðan kemur á daginn að það eru bara viðskipti Þórkötlu sem eru undanskilin stimpilgjaldi og þau eru nefnilega þeirrar gerðar að vera bara inn- og útstreymi hjá ríkissjóði þannig að áhrifin af því eru raunverulega engin. Svör sem maður hefur dregið út úr hinu opinbera hvað þetta varðar hafa verið öll í þá veruna að engu er lofað í þessum efnum. Aftur kemur þarna að væntingastjórnuninni af því að býsna stór hópur Grindvíkinga mat það sem svo og skynjaði það þannig að þessu hefði verið lofað á sínum tíma, a.m.k. ýjað mjög sterklega að því.