154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[19:32]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína, sem var mjög áhugaverð, og fór hann víða og ágætlega yfir sviðið. Það sem ég sé í þessu máli er að við erum að framlengja hér rekstrarstuðning, húsnæðisstuðning og stuðning til greiðslu launa en virðumst ekkert hafa lært af þeirri reynslu sem komin er af þeim stuðningi sem við höfum veitt á þessum sviðum. Mér finnst það vanta og það virðist ekki vera neinn lærdómur dreginn af reynslunni. Ef ég man rétt var horft til Covid, en hver er grundvallarmunurinn á Covid og jarðhræringum í Grindavík? Hann er náttúrulega augljós því að í Covid stöðvaðist samfélagið og samskipti fólks voru engin en þarna erum við að tala um sveitarfélag þar sem íbúarnir hafa flutt í burtu. Með rekstrarstuðningnum virðist einungis horft til þess að fyrirtækin geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný. Ekki er t.d. verið að horfa til þess að flytja starfsemi annað eða til framtíðarhagnaðar, eins og hjá ræktendum sæeyrna í Grindavík þar sem tekjurnar koma eftir nokkur ár. Það er ekki verið að horfa til þess að bjarga verðmætum, eignum sem eru til staðar í bæjarfélaginu, bæði húsnæði og þeim verðmætum sem eru innan fyrirtækja sem þurfa nú nauðsynlega á stuðningi að halda.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki í fyrsta lagi — það er enginn lærdómur sem kemur þarna inn, engin breyting — hvort það að miða við sömu aðferðafræði og gert hefur verið varðandi tekjufall á árinu á undan, 40% tekjufall, hvort fyrirtæki sem ekki hafa orðið fyrir tekjufalli, t.d. nýsköpunarfyrirtæki sem bíða eftir væntum tekjum í framtíðinni, eigi ekki rétt á því að fá styrk frá ríkinu vegna jarðhræringanna, eins og t.d. ræktendur sæeyrnanna, og hvort það verði ekki að vera sveigjanleiki innan kerfisins. Við getum ekki bara horft á þetta eins og eitt box, að allir séu að lenda í sömu vandræðunum. Það kemur líka inn á þetta með lögheimilið. (Forseti hringir.) Hellingur af fólki sem á eignir í Grindavík á ekki lögheimili í þeim eignum heldur hefur jafnvel keypt fyrir börn og barnabörn sem þar búa eða leigja þær út, t.d. til farandverkamanna eða barna sinna.