154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[19:35]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er á köflum eins og í lausnunum sem teiknaðar eru upp, hvort sem það er núna eða í Covid-faraldrinum, sé hatast við nýsköpunarfyrirtæki og ný, ung fyrirtæki. Það er eiginlega þyngra en tárum taki að rifja upp nokkur af dæmunum sem maður sá í Covid-faraldrinum af fyrirtækjum sem féllu svona illilega milli skips og bryggju í lausnunum á grundvelli þeirra tekjuviðmiða sem sett voru. Ung fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki fóru sérstaklega illa út úr því. Dæmið sem hv. þingmaður nefnir varðandi eldið á sæeyrum er einmitt slíkt dæmi, þar sem tekjufallsstyrkir er lausn sem á ekki við. Það blasir við öllum sem kynna sér reksturinn stuttlega. Segja má að það sé rétt hjá hv. þingmanni að stjórnvöld séu á köflum treg til að læra af reynslunni. Sem dæmi horfum við nú upp á það á sama tíma að nú á að keyra í gegn á þessum þingstubbi heildarendurskoðun á sóttvarnalögum. Það á að keyra í gegn heildarendurskoðun á sóttvarnalögum án þess að nein úttekt hafi átt sér stað á áhrifum þeirra aðgerða sem gripið var til í heimsfaraldrinum, hvað gekk vel, hvað gekk illa og þar fram eftir götunum, á grundvelli gildandi sóttvarnalaga. Nú á að sópa í gegn heildarendurskoðun án þess að slík úttekt hafi farið fram. Þessi tregða, þetta viljaleysi til að læra af reynslunni til góðs; í þessu þarf ekki að felast nein sérstök gagnrýni heldur leit að upplýsingum um hvað gekk vel og hvað gekk illa. Rétt eins og þessi furðuaðgerð núna að ætla að keyra í gegn ný sóttvarnalög umræðulítið á þessum þingstubbi þá sýnist mér á öllu að það sé réttmæt gagnrýni hv. þingmanns að stjórnvöld séu í besta falli treg (Forseti hringir.) til að læra eða draga fram hvað gæti orðið til mest gagns af þeim lausnum sem notaðar voru á fyrri stigum.