154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[19:37]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, mikið rétt, það virðist vera sem það sé engin lærdómskúrfa hjá ríkisstjórninni í þessum málum, það sé bara framlengt það sem lagt var upp með upphaflega, ekki reynt að bjarga þeim sem lentu milli skips og bryggju og ekki horft t.d. til nýsköpunarfyrirtækja og fyrirtækja sem pössuðu ekki inn í módelið sem var upphaflega lagt fram. Það er grundvallaratriði í öllum skipulagseiningum að læra af reynslunni.

Mig langar aðeins að koma inn á frétt sem var á fréttamiðlinum 200 mílur sem er hluti af mbl.is. Þar kemur fram að sjávarútvegsfyrirtækið Þorbjörn, eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, sé að segja upp 56 starfsmönnum. Mig langar að lesa upp úr fréttatilkynningu þeirra þar sem fjallað er um jarðhræringarnar í Grindavík, með leyfi forseta:

„En við sjáum því miður ekki til lands enn hvað það varðar. Spár og mat vísindamanna á stöðu náttúruhamfaranna í Grindavík og aðgerðir yfirvalda leiða óhjákvæmilega til breytinga á starfsemi fyrirtækisins. Við munum áfram þrýsta á yfirvöld að gera okkur og öðrum fyrirtækjum kleift að halda starfsemi sinni áfram í Grindavík að gættu fyllsta öryggi.“ (Forseti hringir.)

Þetta er rótgróið fyrirtæki sem er að segja upp starfsmönnum sínum meðan við erum hér að tala um rekstrarstyrki. (Forseti hringir.) Þetta er algerlega óásættanlegt og væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu.