154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Skipstjórnarnám á sér langa sögu á Íslandi. Frá 1891–2003 var skipstjórnarnámið í sjálfstæðum skóla. Í dag er námið í Tækniskóla Íslands og er hluti af framhaldsskólanámi sem þar er boðið upp á. Stofnun Stýrimannaskólans í Reykjavík 1891 var hluti af sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Bygging Sjómannaskólans í Reykjavík var vígð 4. júlí 1944, nokkrum dögum fyrir lýðveldisstofnun, og var hluti af lýðveldisstofnuninni það ár. Sjómannaskólinn, byggingin, er helsta einkenni höfuðborgarinnar og er eign sjómannastéttarinnar. Yfirlýsingar ráðamanna og hornsteinn skólans er skýr hvað það varðar.

Að undanförnu hefur komið fram vaxandi óánægja með nám í skipstjórn í Tækniskólanum á meðal starfandi skipstjórnarmanna, nemenda, kennara og útgerða. Þessa óánægju ber að taka alvarlega. Hér er um að ræða nám sem menntar fólk til starfa í undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar og til að stjórna dýrustu atvinnutækjum samfélagsins. Verðmætasköpun atvinnugreinarinnar hefur verið og er ein af undirstöðum velmegunar í íslensku samfélagi. Félag skipstjórnarmanna hefur lagt fram tillögur, skýrar tillögur, um framtíð skipstjórnarnáms á Íslandi sem fela í sér að stórefla nám í skipstjórn og sjávarútvegstengdum greinum og leggur til að stofnaður verði skóli sjávarútvegs og siglinga. Skóli sjávarútvegs og siglinga yrði í húsi sjómannaskólans sem yrði mennta- og þekkingarsetur sjávarútvegs á Íslandi. Mikilvægt er að helsta atvinnugrein þjóðarinnar eigi sitt menntasetur. Má benda á til samanburðar að Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri er menntasetur landbúnaðarins og bænda í landinu. Sjávarútvegur, sjómenn og útgerðarmenn, þarf sitt eigið menntasetur. Í tillögunum er gert ráð fyrir námi í skipstjórn, vélstjórn, fisktækni, fiskeldi, slysavörnum, þróun veiðarfæra og nýsköpun í samvinnu við fyrirtæki innan greinarinnar.

Ég skora á hæstv. menntamálaráðherra og alla þá sem láta sig málið varða, sem láta sig menntun í undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar varða, og þá sérstaklega útgerðarmenn, að taka tillögur Félags skipstjórnarmanna til alvarlegrar skoðunar. Við þurfum að hefja umræðu um þetta mikilvæga mál. (Forseti hringir.) Sjávarútvegur á Íslandi dafnar einungis með vel menntuðum starfsmönnum. Mennt er máttur í sjávarútvegi.