Störf þingsins.
Herra forseti. Ég batt ákveðnar vonir við að tveggja vikna hlé frá almennum þingstörfum vegna forsetakosninga gæti slegið á óþol stjórnarflokkanna í garð hvers annars þannig að við gætum farið að ræða og vinna með mikilvæg mál, flókin mál sem þarfnast pólitískrar umræðu, pólitískra skoðanaskipta og lausna þar sem mismunandi hagsmunir eru metnir og leitað leiða til að ná fram niðurstöðu sem best þjónar heildarhagsmunum samfélags okkar. Það var innstæðulaus bjartsýni. Staðreyndin er auðvitað sú, eins og hvert mannsbarn þekkir, að það hefur varla nokkuð annað komist að í tíð þessarar ríkisstjórnar en hvað stjórnarflokkunum gangi illa að vinna saman. Það stjórnarsamstarf sem við búum við gerir að verkum að pólitísk umræða hverfist að mestu um innanmein ríkisstjórnar. Þar liggur áherslan. Þar liggur áhuginn. Mikilvægar, jafnvel nauðsynlegar pólitískar átakalínur hafa verið kerfisbundið máðar út svo þessi ríkisstjórn, þetta sérkennilega hagsmunabandalag, megi lifa. Innihaldsrík skoðanaskipti um hvað er best fyrir íslenskt samfélag komast sjaldan að. Orkan fer í það hvernig hið svokallaða breiða litróf stjórnarflokkanna kemst í gegnum daginn saman eða í sitthvoru lagi. Útkoman er stefnuleysi á flestum sviðum, flótti undan raunverulegum átökum og raunverulegum lausnum fyrir íslenska þjóð. Staða efnahagsmála, heilbrigðismálin, samgöngur, verðbólga og sturlaðir stríðsvextir, svo ég drepi á því helsta.
Ég ætla ekki að halda því fram að ég trúi því að stjórnarflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Vinstri græn, eigi í alvöru svör við þessum áskorunum sem brenna á okkur, bara virkilega öðru nær, en þeir mættu hins vegar fara að haga sér á þann hátt að fólk tryði því að þeim væri ekki sama. En það er sennilega orðið of seint fyrir þá að taka upp þennan takt og það mun bíða næstu ríkisstjórnar.