Störf þingsins.
Forseti. Hafi einhver verið í vafa um það hvort tengsl væru milli forsetakosninga og ríkisstjórnarsamstarfsins blasir svarið við núna þegar við komum til baka inn í þingið og hér er bókstaflega hægt að skera loftið eftir úrslitin. Og jú, kannski hjálpaði könnun gærdagsins ekki til sem sýnir jú að einn ríkisstjórnarflokkanna er í alvarlegri útrýmingarhættu. Rólegheitin í aðdraganda forsetakosninga voru auðvitað algjört svikalogn og nú erum við að ræða um hvaða mál sé hægt að klára á næstu dögum og við okkur blasir á sama tíma og við finnum auðvitað að ríkisstjórnarsamstarfið hangir á bláþræði. Það eru vissulega mjög mörg stór mál sem ætti að afgreiða og þyrftu að fá umfjöllun á þingi sem hefur annars einkennst af því að hér hefur lítið sem ekkert verið að gerast. En við finnum alveg hvernig andrúmsloftið er. Við finnum líka að a.m.k. einn ríkisstjórnarflokkanna er núna farinn að þefa uppi móðganir og tilefni til að sprengja ríkisstjórnarsamstarfið. VG situr kannski við ríkisstjórnarborðið og skoðar það hvort servéttubrotið sé rangt og hvort það gefi þeim tilefni til að yfirgefa samstarfið eftir sjö ár. En þegar við erum að ræða núna á allra síðustu dögunum hvaða mál eigi eftir að klára, hvaða mál verði hægt að klára, þá held ég að við ættum frekar að horfast í augu við það að mun stærri pólitísk spurning er einfaldlega hvort ríkisstjórnin sé hér á fyrstu dögum júnímánaðar að klára sig sjálf.