154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Nú nálgast forsetakosningar í Bandaríkjunum. Í tilefni af þeim gáfu íhaldssöm hægri öfl þar í landi út sameiginlega opinbera stefnuskrá upp á 920 bls. með ítarlegri aðgerðaáætlun nái þeirra frambjóðandi kjöri. Þar kennir ýmissa grasa. Meðal stefnumála er að leggja niður menntamálaráðuneyti og umhverfisráðuneyti, draga stórlega úr almennri heilsugæslu, einkum er varðar getnaðarvarnir og kynheilbrigði, og banna alfarið þungunarrof, veita skilyrðislausan rétt til að beita hervaldi gegn mótmælendum, safna upplýsingum um borgarana og hollustu þeirra við stjórnvöld, draga mjög úr mál- og kennslufrelsi háskóla og m.a. banna hugtök sem snúa að rannsóknum á jafnrétti og kvenfrelsi, draga úr réttindum hinsegin og trans fólks, innflytjenda og annarra minnihlutahópa og þannig mætti lengi telja. Þetta er yfirlýst stefna voldugra stjórnmálaafla í því sem margir telja eitt helsta lýðræðisríki heims. Í hægri uppsveiflunni sem sjá má stað víða í Evrópu kennir svipaðra grasa þar sem mannréttindi, reisn og virðing lúta í lægra haldi fyrir sérhagsmunabaráttu og mannfyrirlitningu og sú sveifla er stór og djúp og há.

Virðulegi forseti. Helstu vopn gegn hægri öfgastefnu er að halda á lofti þeim gildum sem hafa haldið lífinu í íslenskri þjóð í harðindum og vosbúð kynslóð fram af kynslóð, sem eru samkennd, samvinna og samfélag. Sjálfstæð mannréttindastofnun sem heyrir undir Alþingi er mikilvægur liður í að standa vörð um mannréttindi hér á landi. Því er sérstakt fagnaðarefni að fyrir okkur liggur hér í þinginu á næstu dögum að koma slíkri stofnun á fót sem hluta af því stóra eilífðarverkefni að standa vörð um sjálfsögð mannréttindi öllum til handa.