Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það vekur mér ugg að lesa nær daglega um lögreglu sem fer offari í aðgerðum sínum og beitir valdi og hörku gegn almennum borgurum. Lögreglumaður var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi þar sem hann beitti úðavopni og kylfu. Piparúða var beitt á fólk sem mótmælti við upphaf ríkisstjórnarfundar á dögunum. Rétturinn til mótmæla er stjórnarskrárvarinn og það telst til grundvallarréttinda í lýðræðislegu samfélagi að mótmæla. Það er annað sem vekur mig til umhugsunar en það er það að lögreglumenn virðast nú æ oftar hylja andlit við störf sín. Þannig var það við mótmælin við Stjórnarráðið og aftur hér fyrir utan Alþingi í gær þar sem fólk kom saman til að mótmæla stöðunni á Gaza. Þegar við horfum til annarra landa virðist þetta líka vera að aukast. Andlit eru hulin og auðkenni afmáð af búningum.
Virðulegi forseti. Valdheimildir lögreglu eru takmarkaðar og skýrar og þær verða að vera það. Almennir borgarar verða að geta treyst því að þeirra hagur og vernd sé alltaf leiðarljós lögreglu við störf sín. Reglulega er kallað eftir auknum heimildum fyrir lögreglu, t.d. til vopnaburðar eða eftirlits með almennum borgurum. En ég spyr mig hvort lögregla, sem virðist nú þegar vera í vanda með að ráða við þær heimildir sem hún hefur í dag, hafi við meira vald og fleiri heimildir að gera.
Allir lögreglumenn sem skipaðir eða ráðnir eru vinna heit, með leyfi forseta:
„Því heiti ég og legg við drengskap minn og heiður að lögreglumannsstarfa minn skal ég rækja með kostgæfni og samviskusemi í hvívetna og vinna að því eftir fremsta megni að halda uppi stjórnarskrá lýðveldisins og öðrum lögum þess.“
Hvers virði eru þessi orð þegar almennir borgarar þurfa að óttast það að nýta lýðræðislegan og stjórnarskrárvarinn rétt sinn til að mótmæla á Íslandi?