Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Bláar hitatöskur eru orðnar hluti af borgarmyndinni, þær eru úti um allt og inni í þeim er heimsendur matur. Þær eru merktar fyrirtækinu Wolt eða öðrum sambærilegum aðilum sem eflaust munu bætast í flóruna. Í hugum margra er þetta einfaldlega hluti af deilihagkerfinu svokallaða eða hinu svokallaða gigg-hagkerfi. Við verðum hins vegar að átta okkur á því að svo er ekki. Þessar heimsendingarþjónustur byggjast í mjög stuttu máli á markvissu félagslegu undirboði gagnvart fólki sem nýtur lítilla sem engra réttinda gagnvart vinnuveitanda sínum, vinnuveitanda sem vill ekki einu sinni kannast við það að vera vinnuveitandi, nákvæmlega það, með öllum þeim skyldum sem því fylgir að vera slíkur. Um þetta er fjallað ágætlega í grein sérfræðinga Alþýðusambands Íslands sem birtist á Vísi í dag og varpar ljósi á þessa ömurlegu þróun sem ætlar að verða athugasemdalaust að veruleika á íslenskum vinnumarkaði. Svo vitnað sé beint til orða þeirra, með leyfi forseta:
„Kerfið byggir svo á fullkomlega ógagnsæjum einhliða verðmyndunar-algóriþma sem hannaður er til að finna sársaukaþröskuldinn um hversu fáum krónum er hægt að koma í vasa sendilsins án þess að viðkomandi hætti að sjá tilgang vinnunnar. Framangreint rímar fullkomlega við það sem virðist vera í gangi hjá Wolt og mörgum sambærilegum fyrirbærum í löndunum í kringum okkur.“
Virðulegi forseti. Það er leiðinlegt að vera boðberi slæmra frétta en ef heimsendingin er ódýr og jafnvel ókeypis og hún fer fram í gegnum annan en veitingastaðinn þá eru allar líkur á því að manneskjan sem réttir þér matinn sé að verða fyrir félagslegu undirboði á vinnumarkaði og við eigum ekki að taka þátt í slíku, hvorki sem neytendur og allra síst sem löggjafi. Sendill sem semur við þessa þjónustu kemur líklega ekki út í plús (Forseti hringir.) eftir kvöldið nema hafa senst með tugi sendinga. Við höfum þá skyldu sem löggjafi að taka markvisst (Forseti hringir.) á þessum málum. Í Danmörku og á Norðurlöndunum hefur það verið gert. Það er okkar hlutverk hér. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)