154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Fyrir átta árum steig ég fram og varaði við fjölgun hælisleitenda í landinu og hvatti til bakgrunnsskoðunar þeirra. Viðvörunarorðum mínum var afar fálega tekið og ég fordæmdur, jafnvel smáður. Fólk með þá lífsskoðun að feðraveldið eigi að drottna yfir lífi fólks er ný áskorun fyrir samfélagið. Birtingarmynd þess er fótum troðin réttindi kvenna og hinsegin fólks sem býr við hrottalega meðferð og ógn í lífi sínu. Ímyndunarafl mitt nær ekki til þess hvaða hrottalegu meðferð konur og börn mega þola á heimilum sínum, eins og fram kom í frétt á vísi.is í gær. Með leyfi forseta vitna ég í fréttina um Héraðsdóm Reykjaness:

„Átta [Palestínumenn] hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni.“ — Virðulegi forseti. Slátra dóttur sinni.

Þá hafi móðir konunnar og mágur komið á heimili konunnar og tveggja dætra hennar og þau hafi haldið henni fastri meðan móðirin sló hana með flötum lófa í andlitið. Þá hafi faðir konunnar greint frá því í skýrslutöku hjá lögreglu að ef bróðir konunnar hefði myrt hana hefði það verið í góðu lagi. Hún ætti skilið refsingu í formi þess að vera lamin og fætur hennar og hendur brotnar. Loks hafi tveir bræður konunnar, fósturbróðir og barnsfaðir ítrekað sagt konunni að þeir myndu drepa hana ef hún sliti ekki sambandi sínu við kærastann. Í öðrum ákærulið er móðir konunnar, systir hennar og mágur ákærð fyrir brot með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð dætra konunnar, skapað fyrir þær viðvarandi ógnarástand, sýnt þeim vanvirðandi háttsemi, yfirgang og ruddalegt athæfi.

Virðulegi forseti. Þetta er bara ein saga sem kemst í dómsmál og fjölmiðla af hælisleitendum sem búa í Reykjanesbæ. Það er ekki langt síðan þingmaður Samfylkingarinnar sagði mig ljúga um ógn sem íbúar Reykjanesbæjar búa við. Þau ósannindi eru eins og ásakanir í minn garð fyrir átta árum; standast enga skoðun, eins og tíminn hefur leitt í ljós. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)