154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ágætt að minnast á það að þetta er fólkið sem Sjálfstæðisflokkurinn vill senda burt, sem var verið að tala um hérna áðan. Mig langaði til að tala um það sama og hv. þm. Jódís Skúladóttir minntist á áðan varðandi ofbeldi lögreglu og þennan dóm sem féll um daginn þar sem talið var til refsilækkunar að viðkomandi lögreglumaður hefði verið ungur og óreyndur og hefði misst stjórn á sér í krefjandi aðstæðum. Þetta mál er sorglegt á alla vegu. Ungur og óreyndur í krefjandi aðstæðum, ofbeldið sem af því hlaust og ekki einstakt ofbeldi, þetta er búið að vera í áratugi. Fyrsta málið sem fór héðan fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og vannst var einmitt vegna lögregluofbeldis. Við erum að sjá í mótmælum fyrir ríkisstjórnarfund í síðustu viku mjög sambærileg dæmi, myndi maður ætla af þeim myndböndum sem þar birtust, þar sem fólk var dregið á malbikinu og upp á gangstétt með ansi harkalegum fantabrögðum. Þarna eru einmitt krefjandi aðstæður sem lögreglan er ekki tilbúin og hefur ekki umfang til að bregðast við á nægjanlega skilvirkan hátt. Lausnin hefur verið, kaldhæðnislega, að vopnavæða enn þá meira lögregluna sem mætti í mótmælin með piparúðann á lofti, tilefnislaust. Hann kom ekki í kjölfar einhverra tilfella í mótmælunum þar sem var tilefni til þess að beita piparúða heldur mætti lögreglan með piparúðann í hendi. Það er einfaldlega þannig að þegar það þarf að beita valdi þá (Forseti hringir.) beitir fólk því sem er hendi næst. Þess vegna held ég að við þurfum að taka þetta (Forseti hringir.) dálítið alvarlega. Þetta eru ekki tilfelli sem eru algeng í heildarstörfum lögreglu, þau eru sem betur fer fá en allt of mörg samt sem áður. Það er mjög alvarlegt að þetta skuli koma upp (Forseti hringir.) og þetta hefur mjög alvarleg áhrif á traust okkar til lögreglunnar sem verður að vera gott.