154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Grimmdarverkin á Gaza hafa haldið áfram af fullum þunga undanfarna vetur og löngu orðið ljóst að ísraelsk stjórnvöld skeyta engu um mannúðarlög og tilmæli alþjóðastofnana. Þegar Ísraelsher varpaði sprengjum á flóttamannabúðir í október 2023 þrætti þáverandi utanríkisráðherra Íslands fyrir að um árás væri að ræða. Sagðirðu árás á flóttamannabúðir? spurði hann á blaðamannafundi þar sem hann hegðaði sér eins og almannatengill fyrir Ísraelsríki og varð þannig sjálfum sér og Íslandi til skammar nokkrum dögum eftir að hafa látið Ísland sitja hjá í atkvæðagreiðslu um vopnahlé. VG og Framsókn veittu þessum ráðherra stöðuhækkun og gerðu hann að forsætisráðherra og sem forsætisráðherra hefur hann brugðist við hryllingi í flóttamannabúðum í Rafah með álíka taktlausum hætti. Ekki við öðru að búast, sagði hann í síðustu viku þegar hann var spurður. Almenningur á Íslandi hefur sýnt ríkan vilja til að styðja palestínsku þjóðina. Trumbuslátturinn hefur borist hingað inn. Þessi stuðningur við kúgaða og stríðshrjáða þjóð hefur ómað hingað inn í þingsalinn af Austurvelli aftur og aftur og um þennan stuðning bera kröfugöngur, fjölsóttir baráttufundir, fjáröflun og hetjulegt sjálfboðastarf vitni. Það er löngu orðið tímabært að ríkisstjórn Íslands sýni sama siðferðisþrek. Mads Gilbert, norskur læknir sem hefur unnið í fleiri áratugi á Gaza, var staddur hér á Íslandi í síðustu viku, kallar eftir því að Norðurlöndin taki sig saman um kröftugri þrýsting á Ísraelsríki, m.a. með beitingu viðskiptaþvingana. Þetta er í samræmi við málflutning sem við í Samfylkingunni höfum viðhaft hér á Alþingi. Það er enn óvíst hver afdrif friðarumleitana sem nú standa yfir verða. Ef stríðsglæpunum linnir ekki verður Ísland að taka miklu ákveðnari skref til stuðnings palestínsku þjóðinni. Þá er það grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld leiti samtals við aðrar Norðurlandaþjóðir um efnahagslegar og pólitískar þvingunaraðgerðir gegn Ísrael.