154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[14:10]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Áður en ég hef mína ræðu hér ætla ég að óska Höllu Tómasdóttur til hamingju með forsetakjörið. Af því tilefni er ég búinn að setja upp hálsklút þessa vikuna, bara svo það hafi verið sagt.

Ég er hér í dag til að ræða um mjög mikilvægt mál, frumvarp sem lagt hefur verið fram til að aðstoða íbúa og fyrirtæki í Grindavík eftir þær miklu náttúruhamfarir sem þar hafa átt sér stað. Mér rennur blóðið sannarlega til skyldunnar þegar talað er um Grindavík. Það vill svo til að núna í júní eru nákvæmlega 50 ár síðan ég flutti til Grindavíkur 1974. Ég keypti hús í svokallaðri Eyjabyggð. Það voru hús sem í daglegu tali voru kölluð viðlagasjóðshús sem höfðu verið byggð fyrir Vestmannaeyinga sem höfðu tapað heimilum sínum í gosinu árinu áður. Sem betur fer tókst Vestmannaeyingum að byggja upp sitt líf fyrr en áætlað hafði verið þannig að þessi hús sem höfðu verið byggð víða um landið voru seld á frjálsum markaði og ég var svo heppinn að ganga inn í slíkt. Ég sá um félagsheimilið Festi á þessum tíma og var þar í rúm þrjú ár og bara svo það hafi verið sagt var það besti tími ævi minnar. Þess vegna þykir mér ákaflega vænt um Grindavík og hef gaman af að tala um Grindavík. Á þessum tíma, þegar ég var þar, var Grindavík nýorðin kaupstaður sem þýddi að þar bjuggu 1.500 manns. Núna rétt fyrir gos var talan komin upp í 3.500 þannig að Grindavík hefur heldur betur vaxið.

En svo ég haldi áfram með ræðu mína: Eins og við öll vitum hefur Grindavík orðið fyrir gríðarlegum áföllum vegna síendurtekinna jarðhræringa og eldgosa. Heimili hafa eyðilagst. Fyrirtæki hafa þurft að loka eða flytja starfsemi sína annað og innviðir bæjarins hafa beðið mikinn skaða. Þrátt fyrir allt hefur fólkið í Grindavík sýnt gífurlegan styrk og þrautseigju á þessum erfiðu tímum. Samfélagið hefur staðið saman af einstökum samtakamætti. Stjórnvöld hafa lagt sitt af mörkum með ýmsum stuðningsaðgerðum til að létta byrðarnar og hjálpa fólki og fyrirtækjum í Grindavík. Veittur hefur verið tímabundinn rekstrarstuðningur, greiddur sértækur húsnæðisstuðningur og stutt við launagreiðslur. Þetta hefur verið gert til að sýna að við stöndum öll með Grindvíkingum á þessum mótlætistímum en verkefninu er svo sannarlega ekki lokið. Það er morgunljóst að þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda hingað til er enn mikil þörf á frekari aðstoð.

Meginmarkmið frumvarpsins sem við ræddum hér í gær er að framlengja nokkur lykilúrræði til ársloka 2024 til að gefa fólki og fyrirtækjum í Grindavík enn betri möguleika á að vinna sig út úr erfiðleikunum og byggja sig upp á nýtt. Það fyrsta sem frumvarpið gerir ráð fyrir er að framlengja gildistíma tímabundins rekstrarstuðnings til fyrirtækja út árið 2024. Þetta þýðir að öll fyrirtæki í Grindavík sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi, 50% eða meira, vegna hamfaranna geta sótt um beina styrki úr ríkissjóði næstu mánuðina, allt að 6 millj. kr. á mánuði. Þetta skiptir sköpum fyrir mörg lítil og meðalstór fyrirtæki sem eiga um sárt að binda. Með þessum stuðningi ættu þau að geta viðhaldið lágmarksstarfsemi, haldið í lykilstarfsfólk, varðveitt tengsl við viðskiptavini og hafið rekstur að nýju af fullum krafti um leið og aðstæður leyfa.

Í öðru lagi gerir frumvarpið ráð fyrir að sértækur húsnæðisstuðningur verði framlengdur til þeirra íbúa Grindavíkur sem enn þurfa að leigja húsnæði annars staðar vegna hamfaranna. Þessi stuðningur átti upphaflega að renna út í lok ágúst en ljóst er að allt of margir eru enn án varanlegs húsnæðis. Því er bráðnauðsynlegt að framlengja þetta úrræði út árið svo fólk geti viðhaldið einhverri festu í lífi sínu. Þá snertir þetta úrræði á vanda margra sem hafa ekki enn fengið greitt fyrir húsnæði sem þeir hafa selt Þórkötlu og þurfa því að leigja íbúð lengur en þeir höfðu gert ráð fyrir.

Samkvæmt útreikningum í greinargerð frumvarpsins gæti þetta kostað ríkissjóð 960 milljónir í beinan rekstrarstuðning, 250 milljónir til viðbótar í húsnæðisstuðning og 1–2 milljarða í launagreiðslur á næstu mánuðum. Já, þetta eru háar fjárhæðir, sérstaklega á tímum þegar gæta þarf að útgjöldum hins opinbera, en það verður líka að horfa á heildarmyndina. Getum við leyft okkur að horfa fram hjá þörfinni? Getum við horft í augun á Grindvíkingum og sagt þeim að þeir geti bara spjarað sig sjálfir? Nei, ég held ekki og ég held að flestir hér inni séu mér sammála um það. Sem þjóðfélag sem stendur saman höfum við ákveðnar skyldur gagnvart hvert öðru. Þegar neyðin er mest verðum við að rétta fram hjálparhönd, jafnvel þó að það kosti okkur eitthvað. Það er kjarni málsins. Þetta frumvarp, þótt það sé bara eitt lítið skref, er engu að síður mikilvægt skref í þá átt að sýna í verki að við ætlum að standa með íbúum Grindavíkur, ekki bara í orði heldur líka á borði og það þýðir áframhaldandi aðgerðir. Auðvitað væri best ef þessum náttúruhamförum lyki fljótt, ef náttúran færi að hegða sér eins og við viljum og ef hægt væri að byggja Grindavík upp aftur í einni svipan en því miður, við verðum að vera raunsæ, náttúran hefur sinn eigin vilja og við getum ekki alltaf ráðið för.

Með einhuga samstöðu höfum við Íslendingar ávallt risið upp sterkari eftir áföll og hamfarir. Ég trúi því og treysti að svo verði einnig nú. Allt snýst þetta um að styrkja samfélagið í Grindavík og hjálpa því að hefja sína endurreisn. Við þurfum að halda áfram að senda skýr skilaboð um að Alþingi Íslendinga og þar með þjóðin öll ætli að leggja sitt af mörkum og styðja íbúa Grindavíkur af heilum hug. Saman getum við sýnt í verki hvers konar fólk við Íslendingar erum þegar á reynir. Ef eitthvað er þá þurfum við á Alþingi og ríkisstjórnin einnig að vera fljót að bregðast við ábendingum Grindvíkinga um atriði sem betur þarf að athuga.

Að lokum vil ég taka undir það sem kom fram í gær, að ég tel það alveg sjálfsagt að öll íbúðarhús, hvort sem þau eru í eigu einstaklinga sem búa þar eða einstaklinga sem eru að leigja þau út, verði keypt, því þetta er sparifé fólksins í Grindavík og það á ekki skilið að tapa því í einni svipan.